17.04.21 - 20:21
Victor Pálsson
Æfingaleikur: Samúel Kári skoraði gegn Asane

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Kári Friðjónsson spilaði með liði Viking í dag sem mætti Asane í æfingaleik í Noregi.
Þetta var fyrsti æfingaleikur Viking eftir gott hlé en honum lauk með 1-1 jafntefli.
Samúel Kári jafnaði metin í 1-1 fyrir Viking en hann hefur leikið með liðinu síðan á síðasta ári.
Miðjumaðurinn var lánaður til Viking árið 2019 frá Valerenga en samdi svo stutt við Paderborn í Þýskalandi í kjölfarið.
Viking ákvað að tala leikmanninn aftur í október í fyrra og er hann samningsbundinn til ársins 2022.
Norska úrvalsdeildin hefst í næsta mánuði og hefur Viking leik gegn Brann þann 9. maí.