Fotbolti.net
13.10.26 - 11:30
Snæbjört Pálsdóttir

Leyfir sér varla að hugsa til Brasilíu: „Algjör draumur“

Cecilía Rán Rúnarsdóttir segir það draum að komast á heimsmeistaramótið í Brasilíu en vill ekki hugsa of langt fram í tímann áður en verkefninu gegn Króatíu lýkur.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir segir það draum að komast á heimsmeistaramótið í Brasilíu en vill ekki hugsa of langt fram í tímann áður en verkefninu gegn Króatíu lýkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalandslið

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður Íslands, segir það algjöran draum að komast með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótið í Brasilíu á næsta ári. Hún vill þó ekki leyfa sér að hugsa of langt fram í tímann enda bíður íslenska liðsins enn mikilvæg verkefni.

Cecilía hélt að Hlín hefði skorað: „Ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum“
TENGT EFNI

Cecilía hélt að Hlín hefði skorað: „Ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum“

Ísland vann sannfærandi 4-0 sigur á Króatíu á útivelli á föstudaginn og er því í afar vænlegri stöðu fyrir seinni leik þjóðanna á Laugardalsvelli í dag, klukkan 17:30.

Cecilía var að vonum ánægð með frammistöðuna og stemninguna í íslenska hópnum eftir sigurinn.

„Bara ótrúlega góð. Ótrúlega stolt af hópnum og liðinu. Við gáfum allt í þennan leik og það sást. Bara geggjað að vera með 4-0 forskot í seinni leikinn.“

Þrátt fyrir forskotið segir Cecilía að íslenska liðið ætli sér ekkert annað en sigur á heimavelli.

„Við erum náttúrulega allar svo miklir fagmenn og við viljum bara vinna alla leiki. Ég held það skipti engu máli fyrir neinn hvort við séum 4-0 undir eða 4-0 yfir.“

„Við viljum bara mæta í leikinn og við viljum vinna. Viljum vinna fyrir þjóðina. Þetta er heimaleikur. Þetta verður bara geggjað og vonandi verður þetta bara gott kvöld og við getum fagnað vel eftir á.“

Takist Íslandi að komast áfram bíður annað umspilseinvígi um sæti á heimsmeistaramótinu. Cecilía var spurð hvað það myndi þýða fyrir hana persónulega að komast alla leið á HM í Brasilíu.

„Það væri náttúrulega bara algjör draumur og maður vill bara ekki leyfa sér að hugsa svona langt. Maður er alltaf einhvern veginn að reyna að fókusa og vill ekki leiða hugann of langt.“

Hún viðurkennir þó að tilhugsunin sé spennandi.

„Ef ég leyfi mér það, þá held ég að það sé bara draumur allra að komast á HM og hvað þá í Brasilíu. Þetta væri bara ótrúlega sterkt fyrir þjóðina og fyrir mig persónulega væri þetta bara draumur.“

Cecilía vonast til að sem flestir mæti á Laugardalsvöll og styðji íslenska liðið.

„Við viljum bara fá að spila fyrir ykkur. Þið eruð tólfti maðurinn á vellinum og við þurfum á ykkar stuðningi að halda.“

Miðasala er enn í fullum gangi svo það er um að gera að versla sér miða og taka þátt í stemminguni!

Leyfir sér varla að hugsa til Brasilíu: „Algjör draumur“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cecilía hélt að Hlín hefði skorað: „Ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.