Fotbolti.net
17.06.26 - 16:00
Sævar Þór Sveinsson

Stjarnan var með hæsta launahlutfallið af öllum liðum í fyrra

Karlalið Stjörnunnar endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Karlalið Stjörnunnar endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Rekstrargjöld Stjörnunnar voru hátt í 541 milljón króna á síðasta ári og hækkuðu um 50 milljónir króna á milli ára. Stærsti útgjaldaliður Stjörnunnar eru laun og tengd gjöld sem voru 390 milljónir króna árið 2025. Þar á eftir er annar rekstrarkostnaður næststærsti útgjaldaliður Stjörnunnar, ríflega 91 milljón króna. 

Það er þó eitt sem þarf að hafa í huga með útgjöld Stjörnunnar í samanburði við önnur félög. Stjarnan gjaldfærir öll sín leikmannakaup, ólíkt öllum öðrum liðum á Íslandi sem eignfæra leikmannakaupin sín. Þannig þegar Stjarnan kaupir leikmann er það fært inn í rekstrarreikninginn og lækkar þar af leiðandi afkomuna. En þegar önnur félög eignfæra keypta leikmenn þá er það fært í gegnum efnahagsreikninginn sem eign, og hefur þar af leiðandi engin áhrif á afkomuna. Í leyfisreglugerð KSÍ er félögum í sjálfsvald sett hvort þau eignfæra eða gjaldfæra leikmannakaup. Það er algengast, bæði hér á landi sem og erlendis, að félög eignfæri leikmannakaupin sín.


Launahlutfall Stjörnunnar hækkaði um 29,3 prósentustig á milli ára og var 84,1% árið 2025. Það er hæsta launahlutfallið hjá íslensku fótboltaliði árið 2025. Síðustu fimm árin hefur launahlutfall Stjörnunnar að meðaltali verið 72,3%.


Greinin er hluti af pistli sem birtist 14. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. þar sem ársreikningur Stjörnunnar var greindur. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

UTAN VALLAR: Stjarnan rekin með 80 milljón króna tapi árið 2025
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Stjarnan rekin með 80 milljón króna tapi árið 2025

Kvennalið Stjörnunnar endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Kvennalið Stjörnunnar endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.