14.06.26
UTAN VALLAR: Stjarnan rekin með 80 milljón króna tapi árið 2025
EFTIR SÆVAR ÞÓR SVEINSSON
Í ársreikningi Stjörnunnar má sjá að rekstrartekjur lækkuðu um 99 milljónir króna, launahlutfallið var 84%, afkoman var neikvæð um 80 milljónir króna, handbært fé hækkaði um 13 milljónir króna og skuldahlutfallið var 68% svo eitthvað sé nefnt. Stjarnan var með verstu afkomuna af öllum fótboltaliðum á Íslandi árið 2025. Knattspyrnudeildin var rekin með 80 milljón króna tapi eftir að hafa skilað 69 milljón króna hagnaði árið áður. Hér verður kafað í ársreikninginn og litið á hvernig tölurnar hafa þróast síðustu fimm árin.








