Fotbolti.net
17.07.26 - 17:06
Kári Snorrason

Aron og Gylfi geta mæst á morgun - „Rætt það sín á milli hvernig þeir ætla að taka hvor á öðrum“

Eftir jafnteflið gegn Argentínu á HM 2018.

Eftir jafnteflið gegn Argentínu á HM 2018.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það gerist ekki stærra en það,“ segir Sigurður Heiðar Höskuldsson aðspurður um heimkomu Arons Einars Gunnarssonar í uppeldisfélagið Þór í samtali við Fótbolta.net.

Aron, sem er 37 ára, var fyrr í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Þórs. Hann gengur til liðs við félagið á frjálsri sölu frá Al Gharafa. Hann skrifar undir samning við félagið út tímabilið.
Aron Einar kynntur hjá Þór og Gyrðir kemur á láni frá KR (Staðfest)
TENGT EFNI

Aron Einar kynntur hjá Þór og Gyrðir kemur á láni frá KR (Staðfest)

„Hann kemur með karakter, reynslu og leiðtogahæfni. Eitthvað sem hefur svolítið vantað í liðið í sumar. Hann kemur og getur stjórnað svolítið. Óhræddur við að taka ákvarðanir í leikjum. Svo er ára í kringum hann. Hann hefur komið mjög vel inn í þetta og er að nálgast fínasta stand. Hann hækkar viðmiðið á æfingum og gæðin líka.“

Gæti mætt Gylfa
Sigurður segir mjög líklegt að Aron komi við sögu gegn Víkingi á morgun. Þar gæti hann mætt Gylfa Þór Sigurðssyni, samherja sínum í landsliðinu til margra ára.

„Það er mjög skemmtilegt. Ég held að þeir hafi rætt það sín á milli hvernig þeir ætli að taka á hvorum öðrum.“

Einhver góð brögð þar?

„Já, það hlýtur að vera,“ segir Sigurður jafnframt.

Þurfa að Kveikja á Þórs einkennunum
Hvað þurfið þið Þórsarar að gera á morgun gegn Íslandsmeisturunum til þess að sækja góð úrslit?

„Við þurfum að mæta Víkingum og nýta orkuna sem við fáum með nýjum leikmönnum. Við getum ekki verið eins litlir og við vorum í seinni hálfleik í síðasta leik, við þurfum að vera töluvert stærri.“

„Við þurfum að vera líkamlegir og kveikja á Þórs-einkennunum, sem við vitum að við erum með. Ef við náum því, fáum smá stemningu í stúkuna og aðeins meiri trú á sjálfa okkur en hefur verið í síðustu leikjum þá hef ég fulla trú á að við eigum séns á morgun,“
segir Sigurður.

Erfitt að lesa í Víkinga
Víkingur mætti Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar í Ungverjalandi á þriðjudag. Sigurður sagðist þó ekki gera sér grein fyrir því hvort Víkingar ætli að gera margar breytingar á liðinu.

„Þeir hafa rúllað á liðinu inn á milli - hvíldu gegn Blikum í Mjólkurbikarnum um daginn. Þannig aðalkallarnir eru búnir að fá einhverja hvíld. Þetta eru allt alvöru íþróttamenn, ég held að það séu ekki margir gaurar þarna sem þrá að fá einhverja hvíld. Ég held að þeir vilji spila alla leiki. Það er erfitt að lesa í það,“ segir Sigurður.

Atli Sigurjóns klár í grannaslaginn
Atli Sigurjónsson hefur verið frá í nokkurn tíma vegna meiðsla. Sigurður segir hann ekki tilbúinn til að snúa aftur í hópinn á morgun en býst við honum klárum í grannaslaginn gegn KA í umferðinni þar á eftir.
Mættur heim í Þór.

Mættur heim í Þór.

Canon

Mynd: Þór

Fagna saman eftir mark Gylfa gegn Hollandi á Laugardalsvelli 2014.

Fagna saman eftir mark Gylfa gegn Hollandi á Laugardalsvelli 2014.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þurfum að kveikja á Þórs-einkennunum.“

„Þurfum að kveikja á Þórs-einkennunum.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Getum ekki verið eins litlir og við vorum í seinni hálfleik í síðasta leik.“

„Getum ekki verið eins litlir og við vorum í seinni hálfleik í síðasta leik.“

Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.