Dómaratríó frá Norður-Írlandi mun sjá um dómgæsluna í leik ÍBV og KA í 17. umferð Pepsi Max-deildarinnar á morgun. Um er að ræða skiptidómaraverkefni milli knattspyrnusambanda Íslands og Norður-Írlands.
Jamie Robinson heitir dómari leiksins en þess má geta að hann varð óvænt fjórði dómari í bikarleik Manchester City og Rotherham í byrjun árs. Robinson mætti upphaflega á leikinn sem áhorfandi en var kallaður úr stúkunni þegar meiðsli komu upp hjá öðrum aðstoðardómaranum.

Ryan Kelsey og Andrew Nethery heita aðstoðardómararnir sem verða á leiknum í Vestmannaeyjum en fjórði dómari verður Helgi Mikael Jónasson.
Hér má annars sjá hverjir halda um flautuna í leikjum morgundagsins.
sunnudagur 18. ágúst
Pepsi Max-deild karla
16:00 ÍBV-KA (Hásteinsvöllur) - Jamie Robinson
17:00 Grindavík-HK (Mustad völlurinn) - Þorvaldur Árnason
18:00 FH-Fylkir (Kaplakrikavöllur) - Jóhann Ingi Jónsson
19:15 Stjarnan-ÍA (Samsung völlurinn) - Sigurður Hjörtur Þrastarson
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir