17.09.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid leggur kapp á að fá JJ Gabriel - „Verðum að fara varlega“

JJ Gabriel er gríðarlega efnilegur.

Mynd: Instagram/jjnr10

JJ Gabriel er gríðarlega efnilegur.

Mynd: Instagram/jjnr10
Hinn 15 ára gamli JJ Gabriel, leikmaður Manchester United, hefur verið mikið í fréttum undanfarið en hann vill yfirgefa félagið.
Gabriel þykir gríðarlega mikið efni. Einhverjir bjuggust við því að sjá hann í hópnum hjá Man Utd gegn Brighton í bikarnum í gær en í ljósi frétta í aðdraganda leiksins kom kannski ekki á óvart að hann var ekki með.

TENGT EFNI
Stórliðin vilja ósátt ungstirni Man Utd - Gæti farið í næsta mánuði
MIchael Carrick, stjóri Man Utd, var spurður út í Gabriel eftir tap liðsins í gær.
„Við verðum að fara varlega. Hann er 15 ára gamall strákur. Þetta snýst meira um velferð, umönnun og athygli JJ sem barns. Staðan er eins og hún er, en við verðum að vera varkár með útsetninguna og hversu mikið við förum á hana," sagði Carrick en Gabriel æfir ekki hjá félaginu um þessar mundir.
Breska ríkisútvarpið segir Barcelona, Paris St-Germain og Bayern München öll hafa mikinn áhuga á ungstirninu. Real Madrid er hinsvegar talið líklegast en spænska stórliðið leggur mikla áherslu á að krækja í strákinn.
Real Madrid er með áætlanir um að setja hann fyrst í sitt fræga varalið, Real Madrid Castilla, en kerfið á Spáni er þannig að hann myndi þá spila aðalliðsfótbolta en liðið spilar í C-deild.