15.09.26 - 13:47
Elvar Geir Magnússon
Helsta vonarstjarnan vill fara frá Man Utd

JJ Gabriel er fimmtán ára.

Mynd: Instagram/jjnr10

JJ Gabriel er fimmtán ára.

Mynd: Instagram/jjnr10
Undrabarnið JJ Gabriel hefur tilkynnt Manchester United að hann vilji yfirgefa félagið. Daily Mail segir frá en JJ Gabriel er 15 ára og hefur fengið mikla athygli og umfjöllun vegna hæfileika sinna.
Hann hefur raðað inn mörkum í öllum litum regnbogans fyrir unglingalið Manchester United og skoraði þrennu í Evrópukeppni unglingaliða í síðustu viku, gegn Sabah.
Sagt er að forráðamenn United bindi enn vonir við að hugur leikmannsins unga, sem er með samning út tímabilið, geti breyst en hann er talinn einn efnilegasti leikmaðurinn í heimsfótboltanum. Þessar fréttir eru mikið högg fyrir félagið.
Samkvæmt fréttum vill Barcelona fá þennan unga leikmann og hann gæti farið til félagsins þegar hann verður 16 ára. Hann fæddist á Englandi og ólst upp í London þar til hann fór í unglingastarf United 2022. Hann á afmæli í október.

TENGT EFNI
Fimmtán ára leikmaður Man Utd skoraði þrennu og setti met
Talað var um að Gabriel gæti verið í leikmannahópnum í deildabikarleiknum gegn Brighton á morgun.