Fotbolti.net
18.01.20 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fimm skrifa undir hjá Þór/KA

Karen María skrifaði undir samning

Karen María skrifaði undir samning

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fimm leikmenn voru að skrifa undir samninga við Þór/KA sem endaði í 4. sæti Pepsi Max-deildar kvenna í fyrra.
Karen María Sigurgeirsdóttir, sem lék 18 deildarleiki síðasta sumar, er meðal þeirra sem hafa skrifað undir. Hún er fædd 2001.

Heiða Ragney Viðarsdóttir, fædd 1995, skrifaði einnig undir en hún lék 12 deildarleiki í fyrra og á í heildina 73 leiki að baki fyrir félagið.

Harpa Jóhannsdóttir, sem lék þrjá leiki fyrir Þór/KA í fyrra, skrifaði einnig undir en hún var mikilvægur hlekkur í liði Hamranna sumarið 2018. Hún er fædd 1998.

Að lokum skrifuðu Hulda Karen Ingvarsdóttir og Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir undir samninga en þær léku báðar með Hömrunum á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.