Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
banner
   mán 18. maí 2026 15:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Athyglisvert fagn í Vesturbænum - Alexander hló að liðsfélögunum
Luke Rae og Amin Cosic voru búnir að æfa fagnið.
Luke Rae og Amin Cosic voru búnir að æfa fagnið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Létt yfir KR-ingum.
Létt yfir KR-ingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingarnir Luke Rae og Amin Cosic fögnuðu á athyglisverðan hátt þegar KR komst í 2-1 gegn Fram í Bestu deildinni í gær. Markið kom á 83. mínútu og skoraði Luke eftir stoðsendingu frá Amin.

Þeir fögnuðu eins og PK Humble hefur gert í Baller League á Bretlandi. Baller League rataði í fréttirnar hér á Fótbolti.net fyrr á árinu í tengslum við Hassan Jalloh, fyrrum leikmaður HK og Grindavíkur, sem fór þó aldrei í deildina.

Í deildinni er leikmaður sem kallar sig PK Humble sem hefur vakið athygli fyrir fagnið sitt og hermdu þeir Luke og Amin eftir því í gær. Liðsfélagi þeirra, Alexander Rafn Pálmason, hló þegar hann sá sína menn fagna.

Lestu um leikinn: KR 2 -  2 Fram



„PK Humble fagnar svona þegar hann skorar í Baller League. Amin sýndi mér myndband af þessu og ég var búinn að sjá þetta því þetta fór út um allt á Bretlandi. Við vorum búnir að hugsa um að gera þetta, en augnablikið var einhvern veginn aldrei rétt. En í gær lagði hann upp á mig og okkur leið eins og það væri fullkominn tímapunktur til að fagna svona saman. Lexi hló því hann hefur séð okkur gera þetta oft inn í klefa," segir Luke og hlær.

Myndir af fagninu má sjá hér með fréttinni. Myndband af PK Humble má sjá hér að neðan og markið í gær og fagnið má sjá hér að ofan.

@ballerleagueuk

PK HUMBLE MIGHT BE THAT GUY ????

? original sound - Footasylum

Slapp
banner
banner
banner