SKÝRSLAN: Húsið ekki lengur fullt
Hvað réði úrslitum?
Það var mikið jafnræði með liðunum á Meistaravöllum í dag. Þó svo að KR-ingar héldu betur í boltann þá fengu gestirnir frá Úlfarsárdal fleiri færi. Framarar lokuðu vel á KR og það vantaði örlítið meiri gæði og betri ákvarðanatöku á síðasta þriðjung KR-inga svo að mörkin hefðu orðið fleiri en tvö. Þegar á botninn er hvolft er jafntefli mjög svo sanngjörn niðurstaða.
Bestu leikmenn
1. Fred Saravia (Fram)
Enginn einn sem stóð gjörsamlega upp úr í kvöld en Fred fær þennan heiður. Skoraði frábært mark og var mest í boltanum af Frömurum.
2. Amin Cosic (KR)
Átti frábæra stoðsendingu á Luke Rae. Alltaf hætta þegar hann fékk boltann úti á vinstri kanti.
Atvikið
Mark Sigurjóns undir lok leiks verður að fá þennan heiður.
Hvað þýða úrslitin?
KR er ekki lengur með fullt hús stiga og eru Víkingar komnir í toppsætið á markatölu. Framarar eru í 3. sæti fimm stigum á eftir KR og Víkingum.
Vondur dagur
Í jöfnunarmarki Fram á 90. mínútu fannst mér Halldór Snær vera svolítið soft og hefði mátt gera betur er hann ætlaði að kýla hornspyrnu Framara frá. Annars hafði hann þó verið nokkuð flottur í leiknum. Kennie Chopart átti erfitt með Amin Cosic í fyrri hálfleik og sömuleiðis Már Ægisson í seinni hálfleik. Amin lék sér að Má í seinna marki KR.
Dómarinn - 7
Svolítið skrítin lína, ekkert voðalega erfiður leikur að dæma en stóru ákvarðanirnar allar hárréttar.




