Fotbolti.net
18.06.26 - 07:30
Sævar Þór Sveinsson

Meistaraflokkar Stjörnunnar skulduðu aðalstjórn félagsins 54 milljónir króna

Karlalið Stjörnunnar endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Karlalið Stjörnunnar endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skuldir Stjörnunnar stóðu í 71,5 milljónum króna á síðasta ári og hækkuðu um 23,6% á milli ára. Skuldirnar eru nær eingöngu flokkaðar sem aðrar skammtímaskuldir, einungis 0,7% af skuldunum eru viðskiptaskuldir. 

Þessi grein byggir á ársreikningi knattspyrnudeildar Stjörnunnar í heild sinni. Það er hins vegar áhugavert að skoða skuldir Stjörnunnar út frá meistaraflokkastarfinu annars vegar og yngri flokka starfinu hins vegar. Þar má sjá að meistaraflokkar Stjörnunnar skulduðu aðalstjórn félagsins 54 milljónir króna. Meistaraflokkur karla spennti bogann allverulega á síðasta ári, meðal annars með tilkomu Steven Caulker. Hins vegar áttu yngri flokkar Stjörnunnar kröfu á hendur aðalstjórnar sem nam 77 milljónum króna. Nettó staðan er því krafa á aðalstjórn upp á tæplega 22 milljónir króna. Þá má ennfremur sjá að kostnaður vegna þjálfunar og leikmanna var verulegur, samtals 298 milljónir króna. Á móti kemur voru rekstrartekjur meistaraflokka einungis 250 milljónir króna.   


Eigið fé Stjörnunnar var 33,5 milljónir króna árið 2025 og lækkaði hressilega vegna 80 milljón króna taprekstursins. Ef við lítum aftur á skiptinguna milli meistaraflokka og yngri flokka þá er eigið fé yngri flokka starfsins 29 milljónir króna. Eigið fé meistaraflokka var einungis 5 milljónir króna og er í raun haldið réttum megin við núllið þökk sé endurmatsreikningi leikmanna. Það er þó eiginfjárliður sem ætti í raun ekki að vera til, þar sem hann er afsprengi stuðlakerfisins sem er notað til þess að verðmeta eignfærða leikmannasamninga. Stuðlakerfið sjálft er ekki í samræmi við íslensku ársreikningalögin og alþjóðlega reikningsskilastaðla.


Greinin er hluti af pistli sem birtist 14. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. þar sem ársreikningur Stjörnunnar var greindur. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

UTAN VALLAR: Stjarnan rekin með 80 milljón króna tapi árið 2025
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Stjarnan rekin með 80 milljón króna tapi árið 2025

Kvennalið Stjörnunnar endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Kvennalið Stjörnunnar endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar 2025.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.