Fotbolti.net
18.08.19 - 13:11
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Cardiff auðveld bráð fyrir Reading

George Puscas skoraði tvö fyrir Reading

George Puscas skoraði tvö fyrir Reading

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Reading 3 - 0 Cardiff City</b>
1-0 George Puscas ('25 )
2-0 George Puscas ('40 )
3-0 John Swift ('83 )
3-0 Yakou Meite ('90 , Misnotað víti)
Reading virðist vera að ná að púsla saman ágætis liði í ensku B-deildinni þetta tímabilið en liðið vann góðan 3-0 sigur á Cardiff City á Madejski-leikvanginum í dag.

Rúmenski framherjann George Puscas gerði tvö mörk fyrir heimamenn og var afar öflugur auk þess sem John Swift komst á blað undir lok leiks.

Reading fékk vítaspyrnu undir lok leiks en Yakou Meite klikkaði á punktinum. Puscas fór af velli á 82. mínútu og átti því ekki möguleika á að fullkomna þrennu sína.

Lokatölur 3-0 fyrir Reading sem náði í fyrstu stigin sín á þessu tímabili en liðið er með 3 stig í 17. sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.