Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 18. október 2021 08:30
Victor Pálsson
Ítalía: Emil lék sinn fyrsta leik - Eina liðið án sigurs
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir lið Virtus Verona á Ítalíu í gær er liðið mætti Giana Erminio í Serie C.

Emil byrjaði leikinn á miðju Virtus en hann fékk að líta gula spjaldið snemma leiks en kláraði þó allar mínúturnar.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Virtus tók forystuna snemma leiks og jafnaði Giana á 36. Mínútu fyrri hálfleiks.

Virtus er í erfiðri stöðu eftir fyrstu níu leikina en liðið er í 19. Sæti deildarinnar með aðeins sex stig.

Virtus er á sama tíma eina liðið sem hefur ekki unnið leik en liðið hefur gert sex jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner