Fotbolti.net
18.10.26 - 21:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Mbappe með glæsilega takta

Spánn: Mbappe með glæsilega takta
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid 4 - 1 Sevilla
1-0 Arda Guler ('30 )
2-0 Kylian Mbappe ('37 )
3-0 Kylian Mbappe ('63 , víti)
3-1 Manu Bueno ('80 )
4-1 Yan Diomande ('82 )
Kylian Mbappe skoraði laglegt mark í öruggum sigri Real Madrid gegn Sevilla í kvöld.

Arda Guler kom Real Madrid yfir með frábæru skoti og Mbappe bætti öðru markinu við stuttu síðar. Hann fékk sendingu og tók við boltanum í miðjum snúning, lék á markvörðinn og skoraði í opið markið.

Hann bætti síðan þriðja markinu við úr vítaspyrnu áður en Manu Beuno klóraði í bakkann fyrir Sevilla. Það var svo Yan Diomande sem innsiglaði sigur Real Madrid með föstu skoti í nærhornið rétt fyrir utan teiginn.

Real Madrid er í 3. sæti með 21 stig, sex stigum á eftir toppliði Barcelona. Sevilla er í 6. sæti með 14 stig eftir 9 umferðir.

Sjáðu allt það helsta úr leiknum

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid9+1122
3Real Madrid9+1321
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-114
7Alaves9+311
8Celta9+311
9Deportivo9+111
10Osasuna9-811
11Athletic7+19
12Villarreal909
13Espanyol9-18
14Vallecano7-58
15Getafe8-68
16Racing Santander9-128
17Levante8-47
18Elche9-67
19Valencia9-96
20Malaga9-124
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.