18.10.26 - 18:08
Elvar Geir Magnússon
Ótrúleg upprisa undir stjórn Freysa - „Bjuggumst ekki við þessu þegar við hófum ferðalagið“

Freyr Alexandersson ræðir við sína menn.

Mynd: Rosenborg

Mynd: EPA

Eftir ótrúlega upprisu síðan Freyr Alexandersson tók við stjórnartaumunum hjá Rosenborg er liðið skyndilega að stefna að því að ná í Evrópusæti. Freyr viðurkennir sjálfur að gengið hafi verið framar öllum vonum.
„Ég er auðvitað meðvitaður um það (möguleikanum á Evrópusæti). Við erum skyndilega komnir í þessa baráttu. Það er eitthvað sem við bjuggumst ekki við þegar ferðalag okkar saman hófst. Við erum góðir en það sama á við um Molde, Tromsö, Lilleström og Brann. Það er feikilega gaman að vera hluti af þessari baráttu," sagði Freyr við TV2 eftir 3-0 stórsigur á Sarpsborg.
Rosenborg hefur unnið 9 af 12 leikjum síðan Freyr tók við, sótt 28 stig af 36 mögulegum, og vann þennan örugga sigur í dag þrátt fyrir að hafa verið án þriggja byrjunarliðsmanna sem tóku út leikbönn.
„Þetta er virkilega ljúft. Ég er stoltur af frammistöðunni og orkunni sem leikmenn sýndu. Ég leiddi hugann ekkert að því að þessa leikmenn hafi vantað. Kannski er ástæðan sú að ég hef svo mikla trú á hópnum í heild, breiddin er góð og menn hafa vaxið."

TENGT EFNI
Góður útisigur hjá lærisveinum Freysa
Með sigrinum komst Rosenborg upp að hlið Molde sem situr í Evrópusæti. Rosenborg er í fimmta sæti með 37 stig, jafn mörg og Molde, þegar sjö umferðir eru eftir af tímabilinu.

Mynd: EPA