Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 19. apríl
Championship
Ipswich Town - Middlesbrough - 11:00
Úrvalsdeildin
Nott. Forest - Burnley - 13:00
Everton - Liverpool - 13:00
Aston Villa - Sunderland - 13:00
Man City - Arsenal - 15:30
1. deild
Metz - Paris FC - 15:15
Strasbourg - Rennes - 15:15
PSG - Lyon - 18:45
Nantes - Brest - 15:15
Mónakó - Auxerre - 13:00
Bundesligan
Bayern - Stuttgart - 15:30
Freiburg - Heidenheim - 13:30
Gladbach - Mainz - 17:30
Serie A
Pisa - Genoa - 16:00
Verona - Milan - 13:00
Juventus - Bologna - 18:45
Cremonese 0 - 0 Torino
Eliteserien
Valerenga - Lillestrom - 12:30
Ham-Kam - KFUM Oslo - 15:00
Kristiansund - Fredrikstad - 15:00
Sarpsborg - Tromso - 15:00
Start - Molde - 17:15
sun 19.apr 2026 09:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: Breiðablik velti 1,3 milljörðum króna í fyrra

Í ársreikningi Breiðabliks má sjá veltu upp á 1,3 milljarða króna, hagnað upp á 167 milljónir króna, 300 milljónir króna í handbæru fé og 43,4% skuldahlutfall.

Greinin var einnig birt á utanvallar.is

Rekstrartekjur Breiðabliks voru 1.349 milljónir króna á síðasta ári, en ekkert félag hefur velt jafnmiklum pening á einu ári. Árið áður voru tekjur Breiðabliks 738 milljónir og því er um að ræða 82,8% hækkun á milli ára. Þessa tekjuaukningu má rekja til tekna af Evrópukeppnum, en bæði karla- og kvennaliðið náðu góðum árangri þar. Tekjur af mótum voru 920 milljónir króna árið 2025 samanborið við 270 milljónir króna árið áður, 241% aukning á milli ára. Þetta var langstærsti tekjuliður Breiðabliks á síðasta ári en rúmlega tveir þriðjungar af tekjum þeirra voru tekjur af mótum.

Karlaliðið komst alla leið inn í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar og fær hátt í 600 milljónir króna samtals fyrir þátttökuna í Sambandsdeildinni. Þó skal hafa í huga að hluti af þeirri fjárhæð er greidd á þessu ári, líklega í kringum 111 milljónir króna. Þar að auki fékk Breiðablik 700 þúsund evrur fyrir þátttökuna í undankeppninni, tæplega 100 milljónir króna, sem var greitt á síðasta ári. Því fær Breiðablik samtals ríflega 700 milljónir króna fyrir Evrópuævintýri karlaliðsins, en bróðurpartur þeirrar fjárhæðar var greitt út af UEFA árið 2025.

Kvennaliðið komst alla leið í 8-liða úrslit Evrópubikarsins og fær hátt í 43 milljónir króna samtals. Tæplega fjórðungur þeirrar fjárhæðar var þó greiddur út í byrjun mars 2026, tæplega 10 milljónir króna. 

Félagaskiptatekjur Breiðabliks voru töluvert lægri árið 2025 en undanfarin ár. Tekjurnar námu 33 milljónum króna á síðasta ári en voru 119 milljónir króna árið áður. Síðustu fimm árin eru félagaskiptatekjur Breiðabliks samtals 447 milljónir króna.


Rekstrargjöld Breiðabliks voru 1.210 milljónir króna á síðasta ári, en ekkert félag hefur verið með jafnhá útgjöld á einu ári. Árið áður voru útgjöld Breiðabliks 865 milljónir króna og því jukust útgjöld um 40% á milli ára. Stærsti útgjaldaliður Breiðabliks á síðasta ári var liðurinn þjálfun, leikmenn og yfirstjórn. Undir þessum lið falla meðal annars launagreiðslur Breiðabliks. Rúmlega 65% af útgjöldum Breiðabliks fóru í þennan útgjaldalið. Næststærsti útgjaldaliður Breiðabliks er vegna þátttöku í mótum sem nam 270 milljónum króna á síðasta ári. 

Þó svo að undir liðnum þjálfun, leikmenn og yfirstjórn sé meira en bara launagreiðslur þá er það ágætis mælikvarði á launahlutfall Breiðabliks. Þar má sjá að launahlutfall Breiðabliks var 58,7% á síðasta ári og hefur að meðaltali verið 64,3% síðustu fimm árin.

Breiðablik var rekið með 167 milljón króna hagnaði á síðasta ári eftir að hafa verið rekið með 104 milljón króna tapi á síðasta ári. Síðustu fimm árin nemur uppsafnaður hagnaður Breiðabliks 313 milljónum króna. Ef félagaskiptatekjur og fjármagnsliðir eru teknir út fyrir sviga er uppsöfnuð afkoma Breiðabliks síðustu fimm árin neikvæð um 198 milljónir króna. 

Eignir Breiðabliks námu 701 milljón króna á síðasta ári og hækkuðu um 62% á milli ára. Eignir Breiðabliks vaxið töluvert mikið frá því sem var árið 2021, eða tæplega fjórfaldast á þeim tíma. Stærsta einstaka eign Breiðabliks er handbært fé sem stóð í 300 milljónum króna í árslok 2025. Þar á eftir er verðbréfaeign félagsins næststærsta eignin, en félagið var með 183 milljónir króna í verðbréfum í lok síðasta árs.

Í lok skýringum ársreikningsins má sjá að í byrjun árs 2025 nam verðbréfaeign Breiðabliks tæplega 115 milljónum króna. Á árinu keypti Breiðablik þó verðbréf fyrir næstum því 177 milljónir króna og seldi verðbréf fyrir samtals 110 milljónir króna.

Ef litið er á veltufjárhlutfall Breiðabliks þá er það í fínum horfum. Veltufjárhlutfallið hækkaði um 20,1 prósentustig á milli ára og var 204,5% í lok árs 2025. Yfir síðustu fimm árin hefur veltufjárhlutfallið að meðaltali verið 202,1%.

Handbært fé Breiðabliks var 300 milljónir króna í árslok 2025 og hækkaði um 116 milljónir króna á milli ára. Ef litið er á sjóðstreymið má sjá að töluverður munur er á milli rekstrarhreyfinganna á milli ára. Handbært fé til rekstrar voru 80 milljónir króna árið 2024 en á síðasta ári var handbært fé frá rekstri 220 milljónir króna og því um að ræða tæplega 300 milljón króna sveiflu á milli ára. Í fjárfestingarhreyfingum Breiðabliks má svo sjá að félagið eyddi 27 milljónum króna í kaup á leikmönnum.

Skuldir Breiðabliks námu 304 milljónum króna í árslok 2025 og hækkuðu um rúmlega 104 milljónir króna á milli ára. Tæplega 170 milljónir króna af skuldum Breiðabliks eru viðskiptaskuldir.

Skuldahlutfall Breiðabliks var 43,4% í lok árs 2025 og lækkaði um 2,9 prósentustig á milli ára. Síðustu fimm árin hefur skuldahlutfall Breiðabliks að meðaltali verið 44,8%.

Eigið fé Breiðabliks stóð í 397 milljónum króna í árslok 2025. Stærsti hluti þess er óráðstafað eigið fé sem var 214 milljónir króna en þar á eftir er styrktarsjóður Guðmundar Eggerts Óskarssonar stór hluti af eigið fé Breiðabliks. Guðmundur arfleiddi félaginu 200 milljónir króna árið 2022. Í skýringum ársreikningsins má sjá að á árinu var 21 milljónum króna eytt í verkefni. Stærsti hluti af peningnum sem Guðmundur arfleiddi er í verðbréfum, tæplega 183 milljónir króna, en auk þess eru ríflega 2 milljónir króna á bankabók.


banner