Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Dybala vill spila í úrvalsdeildinni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
32 ára gamall Paulo Dybala verður samningslaus í sumar og er að skoða möguleikana í kringum sig.

Útlit var fyrir að Dybala væri á leið heim til Argentínu að spila fyrir Boca Juniors en núna virðist hann líklegri til að vera áfram í Evrópu að minnsta kosti eitt ár í viðbót.

Dybala er leikmaður AS Roma og viðurkenndi á fréttamannafundi á dögunum að félagið væri ekki búið að bjóða honum framlengingu á samningi.

Gianluca Di Marzio og Sky Sports halda því fram að Roma sé núna búið að bjóða Dybala nýjan samning þar sem Gian Piero Gasperini þjálfari hefur trú á honum.

Nýr samningur frá Roma inniheldur verulega launalækkun. Einhverjir fjölmiðlar tala um helmingslækkun en aðrir tala um að nýtt samningstilboð feli í sér þrefalda til fjórfalda lækkun á launum.

Dybala ætlar því að skoða vel í kringum sig áður en hann tekur lokaákvörðun. Hann er spenntur fyrir að reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni áður en hann heldur aftur heim til Argentínu. Úrvalsdeildarfélög hafa sýnt honum áhuga í fortíðinni en meiðslavandræði hafa alltaf komið í veg fyrir félagaskipti.

Sky á Ítalíu segir að Rómverjar séu vongóðir um að Dybala muni skrifa undir nýjan samning við félagið þrátt fyrir verulega launalækkun.

Dybala varð heimsmeistari með Argentínu fyrir fjórum árum en er ekki í landsliðshópnum sem fer á HM í sumar.

   12.05.2026 10:30
Dybala ekki með tilboð frá Roma


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner