Luke Rae (2000) kom fyrst til Íslands fyrir tímabilið 2020 og lék þá með Tindastóli. Hann fór svo í Vestra og lék einnig með Gróttu áður en hann gekk í raðir KR fyrir tímabilið 2023. Hann er því á sínu fjórða tímabili í Vesturbænum.
Kantmaðurinn er lykilmaður í sóknarleik liðsins, hefur skorað þrjú mörk og lagt upp fjögur í Bestu deildinni. Hann ræddi við Fótbolta.net í gær og var Englendingurinn spurður út í íslenskuna.
Kantmaðurinn er lykilmaður í sóknarleik liðsins, hefur skorað þrjú mörk og lagt upp fjögur í Bestu deildinni. Hann ræddi við Fótbolta.net í gær og var Englendingurinn spurður út í íslenskuna.
Hvernig gengur að læra hana?
„Það gengur ekki of vel, ég hef alltaf komið með einhverjar afsakanir og verð að hætta því. Ég var með enskan þjálfara fyrsta árið, hjá Vestra var ég mikið í kringum erlenda leikmenn, hjá Gróttu var Chriz Brazell þjálfari og þegar ég kom til KR var erlendur aðstoðarþjálfari sem talaði mikið í klefanum. Ég hef því alltaf verið kringum fólk sem er alltaf að tala ensku, svo það hefur verið erfitt að ná tungumálinu."
„En ég tók fyrstu tímana í byrjun árs og er búinn með fyrsta stigið. Þetta var mjög erfitt, ég get ekki logið öðru. Ég vonast til þess að taka næstu þrjú stig í náminu fyrir lok árs. Tek lítil skref í einu."
„Ég vil vera hluti af kúltúrnum, þú getur það í rauninni ekki þangað til þú skilur málið. Þá getur þú átt samtöl á íslensku við Íslendinga í klefanum án þess að þeir þurfi að skipta yfir á ensku."
Áttu þér uppáhalds íslenskt orð?
Luke hugsaði sig um í smá stund en svo kom orðið til hans.
„Óheppinn. Ég er hrifinn af því orði. Það var leikmaður Liverpool sem varð að jarmi (e. meme). Þegar ég var leikmaður Tindastóls þá var það mjög vinsælt, hann sagði 'unluckyyyy' og ég spurði hvernig það væri sagt á íslensku. Og það var óheppinn. Alltaf þegar ég var á æfingu og einhver klikkaði t.d. á skoti þá var ég fyrir aftan og sagði óheppinn. Ég hef ekki notað það svo mikið að undanförnu, þarf að fara byrja á því aftur," segir Luke léttur.
@lvpooltiktok #lucasleiva #unluckyyyy #lfc #liverpoolfc #fyp #fyp? #fyp??viral ? original sound - Liverpool Tiktok
