Vonar að valið í haust verði erfitt
Benoný Breki fær tækifæri í A-landsliðshóp. Hann er á leið í úrslitaleik á Wembley um næstu helgi um sæti í ensku Championship-deildinni.
Í landsliðshópnum fyrir vináttuleikinn gegn Japan sem spilaður verður í Tókýó 31. maí eru þrír nýliðar, og allir eru þeir framherjar.
Það eru þeir Viktor Bjarki Daðason (2008, FC Kaupmannahöfn), Benoný Breki Andrésson (2005, Stockport) og Stefán Ingi Sigurðarson (2001, Go Ahead Eagles).
Landsliðsþjálfarinn ræddi um þá í viðtali eftir að landsliðshópurinn var tilkynntur í síðustu viku.
Það eru þeir Viktor Bjarki Daðason (2008, FC Kaupmannahöfn), Benoný Breki Andrésson (2005, Stockport) og Stefán Ingi Sigurðarson (2001, Go Ahead Eagles).
Landsliðsþjálfarinn ræddi um þá í viðtali eftir að landsliðshópurinn var tilkynntur í síðustu viku.
„Það eru ungir framherjar í fyrri leiknum, vörnin helst nokkurn veginn á milli leikja en miðjan breytist mikið. Þetta er frábært tækifæri fyrir okkar ungu leikmenn, sem eru búnir að spila virkilega vel með sínum félagsliðum í vetur, til þess að sýna sig og sanna á þessu stigi. Ég bíð spenntur eftir því að sjá hvernig menn höndla þennan leik í kringumstæðum sem þeir eru ekki vanir," sagði Arnar.
Hann var spurður út í Benoný sem er mættur aftur á völlinn eftir að hafa meiðst á fæti fyrr í vetur.
„Það er engin lygi þegar maður horfir á Benoný að hann er kannski á pari við Orra (Stein Óskarsson) þegar kemur að því að klára færin sín. Hann á eftir að sanna sig eins og Orri hefur gert á hæsta stigi (La Liga og með landsliðinu). En það hefur alltaf vakið mína athygli hvað hann er ískaldur fyrir framan markið. Hann er með góðan haus og er hjá góðum klúbbi á Englandi sem oftar en ekki fer undir radarinn því við (fótboltaunnendur) eigum það til að fylgjast með stærstu klúbbunum, en Stockport er mjög öflugur klúbbur og góður staður fyrir hann til að vera á. Benoný er búinn að ná sér og þetta er flott tækifæri fyrir hann," sagði Arnar sem var svo spurður út í Stefán og framherjaúrvalið.
„Þetta er ótrúlegt, hrikalega gaman en jafnframt hrikalega erfitt. Talandi um ferilinn hjá Viktori Bjarka, þá er Stefán Ingi líka búinn að vera á mjög góðri braut síðustu tvö ár, fór frá Belgíu til Noregs og er núna kominn í gott lið í Hollandi þar sem hann spilar reglulega. Það er eðlileg þróun á hans ferli að fá núna að prófa sig í landsliðsumhverfi. Mín von er sú að höfuðverkurinn verði það mikill í haust að það verði erfitt að velja á milli þessara stráka. Við erum að fara í gegnum fjóra leiki á „korteri" í haust. Það er enginn að fara spila alla fjóra leikina, þannig við munum þurfa á sérstaklega stórum framherjahópi að halda," sagði Arnar.
Í haust spilar Ísland fjóra leiki í Þjóðadeildinni í sama landsleikjaglugganum.




