Fotbolti.net
24.10.26 - 13:09
Andri Stefánsson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið KR og Breiðabliks: Fannar Heimisson byrjar hjá KR

Fannar byrjar hjá KR.

Fannar byrjar hjá KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 14:00 tekur KR á móti Breiðabliki í síðustu umferð Bestu deildar karla á Meistaravöllum. Búið er að opinbera byrjunarliðin og hægt er að sjá þau hér fyrir neðan.
Lestu um leikinn: KR 0 - 0 Breiðablik
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir fjórar breytingar á liði sínu eftir 3-2 útisigur gegn Keflavík.

Inn koma Arnar Freyr Ólafsson, Fannar Heimisson, Sigurður Breki Kárason og Orri Hrafn Kjartansson. Fannar er fæddur 2011 og fer til Nordsjælland næsta sumar.

Halldór Snær Georgsson, Luke Rae og Aron Þórður Albertsson fara á bekkinn. Eiður Gauti Sæbjörnsson er ekki með í dag.

Breiðablik gerir sex breytingar á liði sínu eftir 2-1 tap gegn Víkingi.

Inn koma Gylfi Berg Snæhólm, Dagur Örn Fjeldsted, Viktor Örn Margeirsson, Gabríel Snær Hallsson, Kristinn Narfi Björgvinsson og Þorleifur Úlfarsson.

Anton Ari Einarsson, Óli Valur Ómarsson og Birkir Þorsteinsson fara á bekkinn. Anton Logi og Ásgeir Helgi fengu rautt gegn Víkingi og Ívar Örn er mjög líklega meiddur.

Byrjunarlið KR

  • 1. Arnar Freyr Ólafsson (m)
  • 7. Finnur Tómas Pálmason
  • 11. Aron Sigurðarson (f)
  • 21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
  • 22. Ástbjörn Þórðarson
  • 23. Arnór Ingvi Traustason
  • 24. Fannar Heimisson
  • 26. Hrafn Tómasson
  • 30. Sigurður Breki Kárason
  • 45. Galdur Guðmundsson
  • 77. Orri Hrafn Kjartansson

Byrjunarlið Breiðablik

  • 12. Gylfi Berg Snæhólm (m)
  • 7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
  • 8. Viktor Karl Einarsson
  • 14. Hlynur Freyr Karlsson
  • 16. Dagur Örn Fjeldsted
  • 18. Davíð Ingvarsson
  • 21. Viktor Örn Margeirsson
  • 22. Jónatan Guðni Arnarsson
  • 29. Gabríel Snær Hallsson
  • 32. Kristinn Narfi Björgvinsson
  • 99. Þorleifur Úlfarsson
Ásgeir er í banni.

Ásgeir er í banni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Logi fékk að líta rauða spjaldið gegn Víkingi.

Anton Logi fékk að líta rauða spjaldið gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Skúla fékk einnig rautt gegn Víkingi.

Óli Skúla fékk einnig rautt gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.26+5163
2KR26+3053
3Fram26+946
4ÍA26-137
5Breiðablik26+236
6Keflavík26-1129
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.