SKÝRSLAN: Auðveldur sigur en erfiður endir
Hvað réði úrslitum?
Barátta KA manna eftir að ÍBV jafnaði. Það lifnaði yfir KA, sérstaklega þegar þeir ná marki nr. 2. Þá fór þetta að rúlla og það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Bara hve stór hann yrði.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar
Enn einn stórleikur Hallgríms. Það verður seint sagt að hann leggi sig ekki fram í leikjum. Tvö mörk í dag og flott tilþrif
2. Guðjón Hrafnkelsson
Guðjón átti stórgóðan leik, var upp og niður kantinn eins og Þröstur hinn vængjaði varamaður fótboltafélagi Fals. Hann skapaði ótal sinnum usla, átti skot í slá og vann gríðarlega vel fyrir liðið.
Atvikið
Það var ekkert eitt atvik. Eiginlega bara þegar KA hristi af sér spennuna og fór að spila eins og þeir geta best. Þá komu mörkin og leikgleðin. Því miður dugði það ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta eru einhver skrítnustu úrslit sem ég hef orðið vitni af. Stórsigur en samt niðurbrotnir leikmenn.
Þetta þýðir að KA er fallið með jöfnun á flestum stigum fallliðs 29 stig dugðu ekki að þessu sinni. Samt eru það alls ekki úrslitin í dag sem ollu þessu heldur leikir fyrr í sumar sem fóru ekki eins vel og þeir hefðu getað farið.

Vondur dagur
Vondur dagur fyrir bæði lið. Þó sýnu verri fyrir KA. Þrátt fyrir frábæran leik þá enda þeir í Lengjudeildinni að ári þar sem FH gerði lítið til að hjálpa þeim.
Bæði lið komin niður í Lengjuna og mætast því að minnsta kosti tvisvar að ári.
Bæði lið komin niður í Lengjuna og mætast því að minnsta kosti tvisvar að ári.
Dómarinn - 8
Engin stórkostleg vandræði í dag en hefði mátt dæma stundum eins beggja megin en það var ekkert stórvægilegt.