Fotbolti.net
20.09.26 - 16:43
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir úr enska: Jacquet bestur hjá Liverpool - Brobbey fær tíu

Jacquet hefur verið frábær hjá Liverpool

Jacquet hefur verið frábær hjá Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Brian Brobbey fær fullt hús stiga hjá BBC eftir frammistöðuna í 5-3 tapi Sunderland gegn Manchester City á Etihad í dag.
England: Þrenna Brobbey dugði ekki gegn Man City - Isak hetja Liverpool
TENGT EFNI

England: Þrenna Brobbey dugði ekki gegn Man City - Isak hetja Liverpool

Brobbey skoraði þrennu og hélt Sunderland inni í leiknum fram á lokamínúturnar.

Hann fær 10 í einkunn og var langbestur í liði Sunderland. Enzo Le Fee kemur næstur hjá liðinu með 8.

Antoine Semenyo var bestur hjá Manchester City með 9 í einkunn, en margir leikmenn liðsins fá aðeins 5.

Man City: Donnarumma (5), Nunes (5), Dias (5), Guehi (5), Gvardiol (6), Anderson (6), Fernandez (7), Ndiaye (6), Semenyo (9), Cherki (8), Haaland (6).
Varamenn: Doku (6), O'Reilly (6).

Sunderland: Roefs (4), Mukiele (5), Danso (5), Ballard (5), Methalie (5), Xhaka (6), Sadiki (6), Meunier (7), Le Fee (8), Angulo (6), Brobbey (10).
Varamenn: Fofana (6), Isidor (6), Hume (6).

Franski miðvörðurinn Jeremy Jacquet heldur áfram að sanna sig sem frábær kaup hjá Liverpool. Hann átti mjög góðan leik í hjarta varnarinnar í 1-0 sigrinum á Bournemouth og hefur verið afar öruggur síðan hann þreytti frumraun sína.

BBC gefur honum 8 í einkunn fyrir frammistöðuna, en Florian Wirtz er eini byrjunarliðsmaður Liverpool sem fær aðeins 5. Alexander Isak, Alisson, Virgil van Dijk og Cody Gakpo fá allir 7.

Bournemouth: Petrovic (6), Smith (6), Silva (6), Hill (6), Truffert (5), Adams (5), Scott (6), Rayan (6), Christie (6), Tavernier (6), Evanilson (6).
Varamenn: Cook (5), Jebbison (5), Brooks (5).

Liverpool: Alisson (7), Araujo (6), Jacquet (8), Van Dijk (7), Kerkez (6), Mac Allister (6), Szoboszlai (6), Gakpo (7), Wirtz (5), Barcola (6), Isak (7).
Varamenn: Munoz (5), Nyoni (5).
Brobbey fór svekktur af velli en fékk þó að eiga boltann

Brobbey fór svekktur af velli en fékk þó að eiga boltann

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.