Fotbolti.net
19.09.26 - 22:53
Mate Dalmay

Siggi: Glórulaust að Jeppe hafi klárað hálfleikinn

Auglýsing
Siggi: Glórulaust að Jeppe hafi klárað hálfleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs var mjög svekktur eftir 3-0 tap í afar mikilvægum nágrannaslag gegn KA fyrr í kvöld.
Besta deildin: Dýrmætur og sannfærandi sigur í Akureyrarslagnum
TENGT EFNI

Besta deildin: Dýrmætur og sannfærandi sigur í Akureyrarslagnum

Lestu um leikinn: KA 3 - 0 Þór
Liðin mættust í fallbaráttu Bestu deildarinnar og var staðan markalaus í leikhlé eftir að KA hafði verið sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Sigga Höskulds fannst lærlingar sínir vera betra liðið í seinni hálfleik og er því hundsvekktur að hafa tapað 3-0.

„Mér fannst við koma mjög góðir út í seinni hálfleikinn og vera með algjöra yfirhönd. Þeir skora svo pirrandi mark og við fáum annað pirrandi mark á okkur í kjölfarið sem drap okkur. Við náðum einhvern veginn ekki að stíga upp eftir það. Fram að því vorum við að ýta þeim vel niður og búa til fullt af stöðum inn í teignum þeirra en við náðum ekki færinu, náðum ekki að setja lokahnykkinn á þetta," sagði Siggi. „Við komum miklu grimmari heldur en þeir út í seinni hálfleikinn."

Það var mikill hasar í leiknum og er Siggi ósáttur að danski varnarmaðurinn Jeppe Pedersen hafi ekki verið rekinn af velli með tvö gul spjöld í fyrri hálfleik. Jeppe gerðist sekur um nokkuð harkalegt brot þegar hann var á gulu spjaldi og kippti þjálfarateymi KA honum af velli í hálfleik. Eiður Smári Guðjohnsen, annar þjálfara KA, sagði í viðtali að leikslokum að hann taldi Jeppe ekki verðskulda annað gult spjald en Siggi er ósammála.

„Leikurinn var fínt dæmdur en að Jeppe Pedersen klári fyrri hálfleikinn er gjörsamlega glórulaust. Það er með ólíkindum að honum hafi ekki verið vikið af velli í fyrri hálfleik."

Þór er í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti í Bestu deildinni þegar þrjár umferðir eru eftir.

„Við förum særðir inn í fríið en mætum svo sannarlega klárir. Særð dýr eru hættulegustu dýrin og við mætum dýrvitlausir eftir pásu."

Eiður Smári: Síðasta sem ég myndi óska mér
TENGT EFNI

Eiður Smári: Síðasta sem ég myndi óska mér

Siggi: Glórulaust að Jeppe hafi klárað hálfleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi: Glórulaust að Jeppe hafi klárað hálfleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.