Pellegrino Matarazzo þjálfari Real Sociedad svaraði spurningum eftir ótrúlegan seinni hálfleik í viðureign liðsins á heimavelli gegn Real Oviedo.
Staðan var markalaus í leikhlé en gestirnir í liði Oviedo komust í tveggja marka forystu eftir tvö föst leikatriði í upphafi síðari hálfleiks. Þá var Orra Steini Óskarssyni skipt inn af bekknum og átti hann eftir að skipta sköpum.
Orri skoraði tvennu og hjálpaði Sociedad að snúa stöðunni sér í vil. Staðan var 3-2 eftir að Orri skoraði á 90. mínútu en Oviedo tókst að jafna í uppbótartíma með enn einu fasta leikatriðinu. Leikurinn var þó ekki búinn og fékk Sociedad tækifæri til að gera sigurmark en tókst ekki, svo lokatölur urðu 3-3.
„Við erum ekki ánægðir. Við erum alls ekki ánægðir eftir þennan leik. Við byrjuðum hörmulega, við settum ekki næga orku í leikinn og fylgdumst bara með. Við vorum eins og áhorfendur," sagði Matarazzo. „Við vorum með handbremsuna á. Við vorum alltaf að senda boltann til baka í stað þess að koma honum upp völlinn.
„Það jákvæða sem við getum tekið úr þessum leik eru viðbrögð strákanna við að lenda tveimur mörkum undir. Við sýndum að við getum brugðist við til að snúa erfiðum leikjum við, en við fengum á sama tíma þrjú mörk á okkur úr föstum leikatriðum sem er alls ekki nógu gott. Við erum búnir að æfa leikatriðin mikið á æfingasvæðinu og ættum ekki að fá þessi mörk á okkur. Við höfum verið að æfa nákvæmlega þau atriði sem urðu okkur að falli í dag og það er ekki ásættanlegt. Við verðum að verjast af öllu hjarta og við gerðum það ekki í þessum leikatriðum.
„Við erum ekki ánægðir með okkar frammistöðu stærsta hluta leiksins eða með að hafa fengið þrjú mörk á okkur úr föstum leikatriðum."
Matarazzo snéri sér svo að Orra Steini og hrósaði honum í hástert, en Orri hefur einungis verið að koma inn af bekknum eftir þrálát meiðsli.
„Það er ótrúlegt hvað hann er mikilvægur fyrir okkur á þessum tímapunkti. Það er svo mikilvægt fyrir okkur að vera búnir að fá hann til baka úr meiðslum. Í hvert skipti sem hann kemur inn af bekknum líður manni eins og hann geti breytt leiknum.
„Á sama tíma þá gefur hann Mikel (Oyarzabal) meira frelsi á vellinum og ég held að þeir tveir geti gert mjög góða hluti saman í sóknarlínunni. Ég er mjög hrifinn af þeirra samvinnu en það er líka mikilvægt að halda Orra frá meiðslum. Við megum ekki við því að missa hann aftur.
„Hann er á mjög góðri braut og ég held að það muni ekki líða langur tími þar til hann fær að spreyta sig í byrjunarliðinu."
21.02.2026 21:32
Orri Steinn mjög pirraður eftir tvennuna
Athugasemdir




