Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. maí 2022 06:00
Victor Pálsson
Fabregas nefnir þrjá sem hann vill sjá í Liverpool
Aurelien Tchouameni
Aurelien Tchouameni
Mynd: EPA

Sofiane Diop, Youssouf Fofana og Aurelien Tchouameni gætu spjarað sig hjá Liverpool að sögn spænska snillingsins, Cesc Fabregas.


Leikmennirnir þrír eru gríðarlega efnilegir og spila með Mónakó í frönsku úrvalsdeildinni þar sem Fabregas var einnig.

Spánverjinn spilaði hlutverk í að bæta leik þessara leikmann en hann býr yfir gríðarlegri reynslu og spilaði með Arsenal, Barcelona og Chelsea.

Tchouameni er sá leikmaður sem rætt er hvað mest um en hann er algjört undrabarn og er á óskalista margra stórliða í Evrópu.

Fabregas vonar að þessir leikmenn endi hjá annað hvort Liverpool eða Bayern Munchen í Þýskalandi.

„Þegar ég kom til Monaco var ég beðinn um að hjálpa að þróa ungu leikmenn liðsins. Í dag líður mér eins og ég sé búinn að vinna mér inn virðingu á meðal kynslóðarinnar," sagði Fabregas.

„Ég vona að ég hafi hjálpað til, okkur líkar vel við hvor annan.Ég mun halda áfram að fylgjast með þeim og tala við þá."

„Ég væri til í að sjá Fofana, Diop eða Tchouameni skrifa undir hjá Bayern Munchen eða Liverpool."


Athugasemdir
banner
banner