Sóknarmaðurinn Jón Arnar Barðdal hefur framlengt samning sinn við HK, sem er í Pepsi Max-deild karla.
Hann hefur skrifað undir samning sem gildir út keppnistímabilið 2022.
„Jón Arnar gekk til liðs við HK í sumar og hefur leikið lykilhlutverk hjá liðinu. Mikil vinnusemi einkennir hans leik sem smitar út í allt liðið," segir í tilkynningu frá Kópavogsfélaginu.
Jón Arnar er uppalinn Stjörnumaður en hann gekk í raðir HK í júní eftir að hafa leikið með KFG undanfarin tvö ár. Hinn 25 ára gamli Jón Arnar hefur á ferlinum einnig leikið með Þrótti R, Fjarðabyggð og ÍR.
Frammistaða hans gegn KR í 3-0 sigri í Vesturbænum er mjög eftirminnileg.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir