Fotbolti.net
22.05.26 - 12:47
Elvar Geir Magnússon

Ágóðinn af tónleikum Loga rennur til Ingvars

Logi Tómasson.

Logi Tómasson.

Canon

Mynd: Mummi Lú

Allur ágóði af tónleikum Loga Tómassonar í Víkinni í næsta mánuði mun renna til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, sem greindist nýverið með krabbamein.

Logi, sem er leikmaður Samsunspor í Tyrklandi og íslenska landsliðsins, hefur verið að sinna tónlist í frítíma sínum í boltanum og heldur tónleika þann 18. júní. Það verða síðustu tónleikar hans um hríð þar sem hann hyggst fókusa alfarið á boltann næstu misseri.
„Gríðarlegt áfall fyrir hópinn að heyra þetta"
TENGT EFNI

„Gríðarlegt áfall fyrir hópinn að heyra þetta"

Logi var samherji Ingvars hjá Víkingi.

„Nýverið greindist fyrrum liðsfélagi og góður vinur óvænt með krabbamein. Við Ingvar spiluðum saman hjá meistaraflokki Víkings og óhætt er að segja eftir að hafa kynnst honum á því tímabili að það er ekki hægt að finna meiri toppmanneskju, bæði innan sem utan vallar," skrifar Logi á Instagram.

„Til að styðja við bakið á honum og hans fjölskyldu hef ég ákveðið að láta allan ágóða af tónleikunum mínum í Víkingsheimilinu 18. júní renna til hans. Hægt er að tryggja sér miða á þá inn á moment.is."


Ingvar Jónsson.

Ingvar Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.