Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 17:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ingvar Jónsson berst við krabbamein
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur greinir frá afar leiðinlegum fréttum í yfirlýsingu á Facebook að markvörðurinn öflugi Ingvar Jónsson hefur greinst með illkynja krabbamein.

Ingvar er nú á leið í lyfjameðferð.

„Víkingur mun styðja þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu hans í þessu erfiða verkefni og erum við þess fullviss um að hann hafi sigur að lokum, enda fæddur sigurvegari," segir í yfirlýsingu Víkings.

„Víkingur og fjölskylda Ingvars óska eftir því að fjölmiðlar sýni Ingvari og fjölskyldu skilning á þessum erfiðu tímum og veiti þeim svigrúm og næði til að takast á við verkefnið framundan. Virðingarfyllst, Víkingur."


Slapp
banner