Ramsdale til Galatasaray?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aaron Ramsdale, sem féll með Southampton úr ensku úrvalsdeildinni í vor, er í sigtinu hjá tyrkneska meistaraliðinu Galatasaray. Þetta kemur fram í Times.
Ramsdale kom til Southampton frá Arsenal á síðasta ári og fór rakleiðis niður með Dýrlingunum sem áttu eitt versta tímabil í sögu deildarinnar.
Englendingurinn, sem er 27 ára gamall, fékk á sig 66 mörk í 30 leikjum í deildinni.
Times segir að hann sé líklega á förum. Hann er með 20 milljóna punda klásúlu í samningnum og er tyrkneska félagið Galatasaray að íhuga að virkja hana.
Galatsaray er í leit að markverði eftir að Fernando Muslera yfirgaf félagið eftir fjórtán ára dvöl.
Marc-andre ter Stegen, markvörður Barcelona, hefur einnig verið orðaður við Galatasaray en það sér Ramsdale sem fýsilegri kosti þegar það kemur að verðmiða og launapakka.