Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 23. janúar 2022 19:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu stórfenglegt mark Ziyech - „Held að það hafi verið 10/10"
Ziyech gerði stórgott mark.
Ziyech gerði stórgott mark.
Mynd: EPA
Hakim Ziyech skoraði mjög fallegt mark þegar Chelsea lagði Tottenham að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Hann kom Chelsea í forystu með markinu og stuttu eftir það gerði varnarmaðurinn Thiago Silva annað markið. Sigurinn var nokkuð þægilegur fyrir Chelsea.

„Við spiluðum vel. Þeir áttu einhverjar skyndisóknir en þær voru ekki mjög hættulegar," sagði Ziyech eftir leik.

„Hversu gott var markið? Ég held að það hafi verið 10/10. Mér fannst ég kannski skjóta aðeins of fast, en svo sá ég boltann í netinu."

Hægt er að sjá þetta glæsilega mark með því að smella hérna. Það er óhætt að mæla með því.
Athugasemdir
banner
banner
banner