Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 23. mars 2020 13:30
Elvar Geir Magnússon
Martinelli: Markmiðið að vinna marga titla með Arsenal
Gabriel Martinelli.
Gabriel Martinelli.
Mynd: Getty Images
Gabriel Martinelli er spennandi leikmaður sem hefur slegið í gegn með Arsenal á tímabilinu. Hann hefur þegar verið orðaður við önnur félög en segir að hugur sinn sé algjörlega hjá Arsenal.

„Ég vil vinna Meistaradeildina og fullt af fleiri titlum með Arsenal, ég vil gleðja stuðningsmenn liðsins," segir Martinelli í nýju viðtali við FourFourTwo.

„Stuðningsmenn Arsenal eiga það besta skilið, líka starfsmennirnir. Ég vil borga það til baka sem þeir hafa gert fyrir mig. Ég vil verða goðsögn hjá þessu félagi."

Þessi 18 ára sóknarmaður hefur verið fullur af sjálfstrausti á tímabilinu en viðurkennir að hafa verið stressaður þegar hann kom fyrst til félagsins.

„Þegar ég kom var hádegismatur og Aubameang var sá eini sem var búinn að fá sér sæti. Ég stressaðist upp og var feiminn en fékk mér sæti við hlið hans. Hann byrjaði að spjalla við mig, hann talar spænsku og spurði mig hvaðan ég væri. Hann tók strax vel á móti mér og óskaði mér góðs gengis," segir Martinelli.
Athugasemdir
banner
banner