Unai Emery, fyrrum stjóri Arsenal, segir að Aaron Ramsey hafi farið í „stórt félag" er hann fór til Juventus.
Sumir enskir fjölmiðlar, eins og til dæmis Football.london, vilja meina að Emery sé að skjóta á sitt fyrrum félag með þessum ummælum sínum.
Miðjumaðurinn yfirgaf Arsenal síðasta sumar á frjásri sölu og samdi við Ítalíumeistara Juventus þar sem hann hefur skorað fjögur mörk í 24 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Að því er kemur frá Tutto Juve segir Emery: „Ramsey ákvað að yfirgefa Arsenal og fór í stórt félag. Aaron verður mikilvægur fyrir Juventus því hann deilir þeirra metnaði."
„Ég hrósaði honum fyrir valið því hann getur unnið mikið þar. Þetta áhugaverð áskorun fyrir hann."
Emery er í leit að nýju starfi og segist hann vera opinn fyrir allt mögulegt.
Athugasemdir