Leikur Kórdrengja og Aftureldingar í Lengjudeildinni hefur verið færður til klukkan 14:00 á morgun laugardag.
Leikurinn átti upphaflega að vera 19:15 í kvöld en þar sem aðili nátengdur einum af leikmönnum Kórdrengja greindist með Covid-19 fara leikmenn liðsins í skimun.
Leikurinn átti upphaflega að vera 19:15 í kvöld en þar sem aðili nátengdur einum af leikmönnum Kórdrengja greindist með Covid-19 fara leikmenn liðsins í skimun.
Veiran er að hafa sín áhrif á deildina en leikmenn Víkings í Ólafsvík eru komnir í sóttkví eftir að leikmaður liðsins greindist jákvæður. Því var leik Víkinga gegn Fram, sem átti að fara fram í kvöld, frestað um óákveðinn tíma.
Tveir leikir fara fram í Lengjudeildinni í kvöld.
föstudagur 23. júlí
18:00 Þór-Grótta (SaltPay-völlurinn)
18:00 ÍBV-Grindavík (Hásteinsvöllur)
laugardagur 24. júlí
14:00 Vestri-Selfoss (Olísvöllurinn)
14:00 Kórdrengir-Afturelding (Domusnovavöllurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir