Fotbolti.net
23.08.19 - 20:55
Ívan Guðjón Baldursson

England: Aston Villa hafði betur gegn Everton

England: Aston Villa hafði betur gegn Everton
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa 2 - 0 Everton
1-0 Wesley Moraes ('21)
2-0 Anwar El-Ghazi ('95)
Nýliðar Aston Villa náðu í sinn fyrstu úrvalsdeildarstig er Everton kom í heimsókn fyrr í kvöld.

Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton en Marco Silva tók hann útaf eftir 62. mínútur til að gera pláss fyrir Alex Iwobi. Þess í stað hélt hann Andre Gomes og Morgan Schneiderlin á miðjunni, sem sköpuðu ótrúlega lítið á Villa Park.

Leikurinn var nokkuð bragðdaufur og einkenndist af harðri baráttu og gæðaleysi á síðasta þriðjungnum. Hvorugt liðið náði að skapa sér mikið af færum en Wesley Moraes skoraði á 21. mínútu eftir góða stungusendingu frá Jota.

Everton komst tvisvar sinnum nálægt því að jafna á lokakaflanum en skot Iwobi fór í stöngina og svo klúðraði Theo Walcott dauðafæri eftir frábæra fyrirgjöf frá Moise Kean.

Gestirnir juku sóknarþungan undir lokin sem varð til þess að Anwar El-Ghazi, sem kom inn af bekknum, tvöfaldaði forystu Villa úr skyndisókn og gulltryggði sigurinn.

Aston Villa er því með þrjú stig eftir þrjár umferðir. Everton er með fjögur stig.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.