04.11.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar um Hjört: Ryþmi og kemestría sem ég vildi halda áfram

Mynd: Guðmundur Svansson

Mynd: Mummi Lú

Mynd: Guðmundur Svansson

Hjörtur Hermannsson, leikmaður Gautaborgar í Svíþjóð, fékk ekki kallið í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar sem tilkynntur var í dag. Hjörtur er 31 árs varnarmaður sem á að baki 31 landsleik en hefur bara spilað í vináttuleikjum í þjálfaratíð Arnars
Það er ekki mikið miðvarðaúrval í landsliðinu en Arnar hefur brugðið á það ráð að spila með Stefán Teit Þórðarson í varnarlínunni í síðustu verkefnum. Miðverðir í hópnum eru þeir Daníel Leó Grétarsson, Hörður Björgvin Magnússon, Aron Einar Gunnarsson og þá getur Guðlaugur Victor Pálsson einnig leyst það hlutverk.
Miðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason var kallaður inn í landsliðið í síðasta glugga en kom ekki við sögu. Arnar var spurður út í Hjört á fréttamannafundi í dag.

TENGT EFNI
Óvíst hvort Daníel Leó verði með landsliðinu - „Tökum þetta dag frá degi"
„Hann var meiddur síðast, vildi fá gott breik til að ná sér fullkomnum," sagði Arnar um síðasta hóp. Hjörtur spilaði alla leiki Gautaborgar í aðdraganda síðustu landsleikja, tók svo út leikbann í fyrsta leik eftir landsleikjatörnina og hefur síðan spilað alla leiki.
„Mér fannst glugginn hafa gengið vel, það var gott kemestrí. Við náðum fjórum leikjum og sextán dögum saman. Það var einhver ryþmi í hópnum og ég vildi að þeir strákar fengju að halda áfram og klára málið. Það er mantran núna, klárum málið og förum glaðir inn í desember," sagði Arnar.