Fotbolti.net
23.10.19 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Hamann: Liverpool hefur mikinn áhuga á Sancho

Hamann: Liverpool hefur mikinn áhuga á Sancho
Canon

Mynd: Getty Images

Dietmar Hamann, fyrrum miðjumaður Liverpool, segir að félagið hafi áhuga á að fá kantmanninn Jadon Sancho í sínar raðir frá Dortmund.

Hinn 19 ára gamli Sancho hefur slegið í gegn síðan hann kom til Dortmund frá Manchester City árið 2017.

<i>„Það sem ég heyri er að Liverpool hafi mikinn áhuga,"</I> sagði Hamann í viðtali við Sky í Þýskalandi.
„Ég get ímyndað mér að þeir verði eitt af áhugasömustu félögunum næsta sumar."

„Hann kemur frá Manchester City og ég veit ekki hvort hann fari aftur þangað. Þetta er líka eitthvað fyrir Manchester United ef þeir vilja einhverntímann fá mann sem hefur verið hjá erkifjendunum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.