Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
þriðjudagur 24. febrúar
Championship
Southampton - QPR - 20:00
Hull City 1 - 0 Derby County
Swansea 0 - 0 Preston NE
Watford 0 - 0 Ipswich Town
West Brom 0 - 0 Charlton Athletic
Wrexham 0 - 0 Portsmouth
Middlesbrough 0 - 0 Leicester
Blackburn 1 - 0 Bristol City
Meistaradeildin
Atletico Madrid 4 - 1 Club Brugge
Leverkusen - Olympiakos - 20:00
Inter - Bodö/Glimt - 20:00
Newcastle - Qarabag - 20:00
þri 24.feb 2026 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: KSÍ áætlar að rekstrartekjur verði 394 milljónum króna lægri í ár

KSÍ hefur birt ársreikninginn sinn fyrir árið 2025 í aðdraganda 80. ársþingsins sem fer fram á Egilstöðum þann 28. febrúar næstkomandi. Á næstu dögum verða birtar nokkrar greinar þar sem rýnt verður í tölurnar.

Greinin var einnig birt á utanvallar.is

Samhliða ársreikningnum birti KSÍ fjárhagsáætlun fyrir árið 2026. Þar er gert ráð fyrir því að rekstrartekjur KSÍ verði 1.988 milljónir á árinu, 361 milljón krónum lægri rekstrartekjur en árið 2025. Helsta ástæðan fyrir lægri rekstrartekjum er vegna tekjuliðarins Styrkir og framlög, sem gert er ráð fyrir því að verði 1.107 milljónir króna í ár samanborið við 1.501 milljónir króna. Greiðslur frá UEFA falla meðal annars undir þennan tekjulið. Þar munar til dæmis um greiðslur vegna þátttöku A-landsliðs kvenna á EM 2025, en framlög UEFA vegna þess voru 290 milljónir króna.

Þar að auki er meirihluti tekna í erlendri mynt og því munu gengissveiflur koma til með að hafa áhrif á rekstrartekjurnar.

KSÍ gerir ráð fyrir því að fá 20 milljónir króna frá Íslenskum getraunum sem er svipuð upphæð og knattspyrnusambandið fékk árið 2024 og 2025. KSÍ fær síðan 24,6 milljónir króna úr afrekssjóði ÍSÍ árið 2026, líkt og á síðasta ári. Í greinargerðinni kvartar KSÍ sáran undan því að hafa ekki fengið úthlutað úr þessum sjóði á árunum 2018-2024, þrátt fyrir að hafa uppfyllt öll skilyrði um úthlutun.

Þá bendir KSÍ á, að þrátt fyrir úthlutunina í ár og í fyrra, að þá ætti úthlutunin þar að auki að vera í raun hærri. Sérstakt heimildarákvæði í reglugerð afrekssjóðs ÍSÍ gerir þeim kleift að lækka framlag sitt til KSÍ. Þegar fjárhagsstaða annarra sérsambanda er skoðuð þá er ljóst að þörfin er ekki eins mikil hjá KSÍ. Efnahagsreikningurinn hjá KSÍ er í fínum málum, sem er ekki raunin hjá sumum sérsamböndum. Þar að auki hefur líklega ekkert annað sérsamband jafn góð tækifæri og möguleika á tekjuöflun og KSÍ. Knattspyrnusambandið þarf ekki að bregða sér í líki Óliver Tvist.

Mikið hefur verið rætt að undanförnu um hækkandi álögur á aðildarfélögin fyrir þátttöku þeirra á Íslandsmótinu. KSÍ gerir ráð fyrir því að aðildarfélög KSÍ greiði 40 milljónir króna í ferða- og uppihaldskostnað dómara, auk 67 milljónir króna í þátttökugjöld í Íslandsmót, Mjólkurbikar, bikarkeppni neðri deilda félaga og Lengjubikar karla og kvenna. Þetta gera því samtals 107 milljónir króna sem aðildarfélögin þurfa að bera kostnaðinn af.

KSÍ bendir á í greinargerðinni sinni að með þessu muni knattspyrnusambandið greiða 56,3% af dómarakostnaðinum. Einnig fylgir með samanburður af hinum Norðurlöndunum þar sem sjá má að hlutfallið er það hæsta sem knattspyrnusamband greiðir. Færeyska knattspyrnusambandið greiðir 50%, sænska knattspyrnusambandið greiðir 33% og í hinum löndunum greiðir knattspyrnusambandið ekkert.

KSÍ gerir ráð fyrir því að rekstrargjöldin verði 1.914 milljónir króna á næsta ári. Það er 14,7% lækkun á milli ára en ástæðuna má einna helst rekja til lægri kostnaðar við landslið. Kostnaðurlækkunin nemur 228 milljónum króna og er aðallega vegna lægri kostnaðar við A-landslið kvenna, sem keppti auðvitað á EM sumarið 2025.

Í greinargerðinni er þá einnig bent á þá áhugaverðu staðreynd að yngri landsliðin spila rúmlega 40% færri leiki en samanburðarlöndin okkar. Fjölgun yngri landsleikja er eitthvað sem UEFA og FIFA hafa ítrekað bent KSÍ á að sé forsenda þess að Ísland haldi í þá framþróun sem á sér í flestum samanburðarlöndum okkar. Það er því mikið undir fyrir KSÍ að tryggja sér nægilega miklar tekjur til þess að geta sent yngri landsliðin sem oftast út. Fyrir félögin í landinu er það einnig mikilvægt. Það þarf að hækka rána til þess að félögin geti haldið áfram að selja leikmenn út fyrir sífellt hærri fjárhæðir. Sá peningurinn endar síðan í íslenska fótboltahagkerfinu, öllum til hagsbóta.

Það kemur fram í greinargerðinni að árangur íslenskra félagsliða í Evrópukeppnum hafi raun reynst KSÍ ákveðinn baggi. Það er vegna þess að KSÍ sér um að greiða fyrir dómarakostnaðinn við þessa leiki. KSÍ fær framlög frá UEFA til þess að mæta þessum kostnaði, en dugir þó ekki til. Fyrir leiki í Evrópukeppni unglingaliða fær KSÍ 2.500 evrur sem á að fara í að greiða gistingu, mat og ferðalög fimm dómara í þrjár til fjórar nætur. Fyrir leiki í Meistaradeild kvenna fær KSÍ 5.000 evrur, eða 6.000 evrur ef það er VAR dómgæsla, til þess að greiða gistingu, mat og ferðalög sjö dómara í þrjár til fjórar nætur. Fyrir leiki í Evrópukeppnum karla fær KSÍ 6.000 evrur, eða 8.000 evrur ef það er VAR dómgæsla, til þess að greiða gistingu, mat og ferðalög sjö til níu dómara í þrjár til fjórar nætur.

Á síðasta ári greiddi KSÍ 9,3 milljónir króna með þessum kostnaði og er tekið fram í greinargerðinni að KSÍ mun hefja viðræður við aðildarfélög sem þetta varðar á næstu vikum.

KSÍ gerir ráð fyrir því að greiða 97 milljónir króna til aðildarfélaganna á þessu ári samanborið við hátt í 107 milljónir króna á síðasta ári. Á það er bent að á síðastu tíu árum hafa aðildarfélögin fengið samtals 2.499 milljónir króna ráðstafað frá KSÍ auk 1.843 milljónir sem dómarakostnaður hefur verið. Á þeim tíma hafa aðildarfélögin einungis verið rukkuð um 125 milljónir króna af KSÍ í formi þátttökugjalda og ferða- og uppihaldskostnaðar dómara.

Að lokum þá gerir KSÍ ráð fyrir því að rekstrarhagnaður verði 74 milljónir króna en þegar fjármagnsliðir og ráðstöfun til aðildarfélaga hafa verið teknir inn í jöfnuna verður hagnaður ársins 2,6 milljónir króna.


Athugasemdir
banner