Tindastóll 1 - 4 KFG
0-1 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('10 )
0-2 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('13 )
0-3 Birgir Ólafur Helgason ('17 )
1-3 Halldór Broddi Þorsteinsson ('70 )
1-4 Guðjón Viðarsson Scheving ('85 )
0-1 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('10 )
0-2 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('13 )
0-3 Birgir Ólafur Helgason ('17 )
1-3 Halldór Broddi Þorsteinsson ('70 )
1-4 Guðjón Viðarsson Scheving ('85 )
KFG kláraði Tindastól í fyrri hálfleik er liðin áttust við á Sauðárkróki í 3. deildinni í dag en leiknum lauk með 4-1 sigri Garðbæinga.
Jóhann Ólafur Jóhannsson skoraði tvö mörk með þriggja mínútna millibili áður en Birgir Ólafur Helgason gerði þriðja markið nokkrum mínútum síðar.
Staðan í hálfleik 3-0 fyrir gestunum og erfitt fyrir heimamenn að koma til baka. Halldór Broddi Þorsteinsson minnkaði muninn fyrir Tindastól þegar tuttugu mínútur voru eftir áður en Guðjón Viðarsson Scheving gulltryggði sigur KFG.
KFG er í 2. sæti með 28 stig, fimm stigum á undan Ægi sem er í þriðja sætinu. Tindastóll er á meðan í næst neðsta sæti með 10 stig.
Athugasemdir