Fotbolti.net
24.08.26 - 12:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Þetta er mjög vont fyrir Blika, en frábært fyrir hann"

Ágúst Orri er U21 landsliðsmaður sem lék sinn fyrsta A-landsleik í vetur.

Ágúst Orri er U21 landsliðsmaður sem lék sinn fyrsta A-landsleik í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri Þorsteinsson er á leið frá Breiðabliki til hollenska félagsins Excelsior sem kaupir hann af uppeldisfélaginu.

Ágúst, sem er lykilmaður í sóknarleik Breiðabliks, verður því ekki með Blikum í bikarúrslitaleiknum gegn Aftureldingu í næsta mánuði. Hann verður ekki heldur með Blikum gegn Fram í kvöld þar sem Ágúst er mættur til Hollands.

Rætt var um sóknarmanninn í Útvarpsþættinum Fótbolta.net á laugardag. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum neðst.
Ágúst Orri á leið til Hollands
TENGT EFNI

Ágúst Orri á leið til Hollands

„Sá maður sem er þeirra helsta vopn og með mesta sköpunarmáttinn er á leið til Excelsior í Hollandi. Hann verður ekki meira með Blikum á tímabilinu," sagði Elvar Geir í þættinum.

„Þetta er vatn á myllu Aftureldingar fyrir bikarúrslitaleikinn. Það er risastórt að vera ekki með hann, því Ágúst er búinn að vera svakalega öflugur. Krafturinn og gæðin í honum - og þessi vilji til að keyra fram á við - gerir svo mikið fyrir hina mennina í liðinu. Þetta er mjög vont fyrir Blika, en frábært fyrir hann," sagði Tómas Þór.

„Við samgleðjumst honum, frábært skref að fara til Excelsior," bætti Elvar Geir við.

Ágúst er í þriðja sinn að fara frá Blikum á sínum stutta ferli því hann hefur þegar verið á mála hjá Malmö og Genoa á sínum ferli.

Ágúst á að baki 16 Evrópuleiki með Blikum og hefur á þessu tímabili skorað sex mörk og lagt upp fjögur í Bestu deildinni. Þá hefur hann skorað fjögur mörk í jafn mörgum bikarleikjum.

Á síðasta áratugi voru þrír Íslendingar á mála hjá Excelsior. Það eru þeir Elías Már Ómarsson, Ögmundur Kristinsson og Mikael Anderson. Liðið endaði í 13. sæti á síðasta tímabili og er með þrjú stig eftir tvo leiki á þessu tímabili. Næsti leikur er nágrannaslagur gegn Sparta Rotterdam á heimavelli næsta laugardag. Nökkvi Þeyr Þórisson er leikmaður Spörtu.

Bikarúrslitaleikur Breiðabliks og Aftureldingar fer fram á Laugardalsvelli þann 11. september.
Hann er fæddur árið 2005 og hefur verið lykilmaður í sóknarleik Breiðabliks.

Hann er fæddur árið 2005 og hefur verið lykilmaður í sóknarleik Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er í þriðja sinn á stuttum ferli á förum frá Breiðabliki til erlends félags.

Hann er í þriðja sinn á stuttum ferli á förum frá Breiðabliki til erlends félags.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.