Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. nóvember 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar kemur kaldur inn í leik kvöldsins
Neymar með kúrekahatt.
Neymar með kúrekahatt.
Mynd: EPA
Brasilíumaðurinn Neymar hefur ekki verið í sínu besta formi upp á síðkastið.

Hann er með liði sínu - Paris Saint-Germain - í Manchester fyrir leik gegn Man City í Meistaradeildinni í kvöld.

WhoScored birtir athyglisverða tölfræði fyrir leikinn þar sem segir að Neymar sé búinn að fá fjögur gul spjöld í síðustu 12 leikjum sem hann hefur spilað fyrir félagslið og landslið.

Það er meiri fjöldi en mörk skoruð hjá honum, en hann hefur skorað þrjú mörk á þessum tíma.

Það er spurning Neymar - sem er talinn einn besti fótboltamaður í heimi - nái að koma sér í gang í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner