Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. janúar 2023 16:00
Elvar Geir Magnússon
Everton vill Ziyech
Mynd: EPA
Everton er í leit að styrkingu en félagið missti af Arnaut Danjuma á síðustu stundu, Danjuma var kynntur sem nýr leikmaður Tottenham fyrr í dag.

Sky Sports segir að Everton vilji fá marokkóska vængmanninn Hakim Ziyech og sé tilbúið að borga allt að 25 milljónir punda fyrir hann.

Chelsea er sagt opið fyrir því að selja hann en Everton segist ekki hafa lagr fram tilboð í hann.

Anthony Gordon virðist vera að færast nær Newcastle og ljóst að Everton, sem er stjóralaust og í fallsæti, þarf að styrkja sóknarleik sinn.
Athugasemdir
banner
banner