Fotbolti.net
25.06.26 - 01:42
Elvar Geir Magnússon

Með hressustu stuðningsmennina en fúlasta þjálfarann

Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands, er viðskotaillur.

Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands, er viðskotaillur.

Canon

Mynd: EPA

Það mótmælir enginn þeirri fullyrðingu að Skotland eigi skemmtilegustu stuðningsmennina á HM. En að sama skapi má segja að þeir eigi fúlasta þjálfarann.

Steve Clarke var vel pirraður í viðtölum eftir tap gegn Marokkó á dögunum og leyndi heldur ekki pirringnum eftir 3-0 tapið gegn Brasilíu í lokaumferð riðilsins.

Skotland heldur í vonina um að geta komist áfram sem eitt af liðunum með besta árangur í þriðja sæti en Clarke sjálfur býst við að niðurstaðan verði sú að Skotar haldi heim.

„Ég býst fastlega við því að við séum á heimleið," sagði Clarke en mögulega ráðast örlög Skotlands ekki fyrr en á sunnudag.
HM: Brasilía og Marokkó áfram - Vinicius með tvennu
TENGT EFNI

HM: Brasilía og Marokkó áfram - Vinicius með tvennu

Clarke hefur fengið gangrýni fyrir framgöngu sína í viðtölum á HM og mörgum þykir hann hreinlega dónalegur við það fjölmiðlafólk sem þar starfar. Hann gekk út úr viðtali eftir tapið gegn Brasilíu.

„Hann gekk bara burt. Er þetta leiðtogi liðsins??? Þetta er skammarlegt," skrifaði einn stuðningsmaður á X samfélagsmiðlinum og annar skrifaði:

„Það er ólýsanlegt hversu dónalegur hann er. Hann á ekki skilið að vera með þessa stuðningsmenn."

Clarke eftir tapið gegn Brasilíu:


Eftir tapið gegn Marokkó:

Úr leik Skotlands gegn Brasilíu.

Úr leik Skotlands gegn Brasilíu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.