Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. október 2021 20:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enn ein U-beygjan - „Ég elska þig Mauro Icardi"
Icardi og Wanda Nara.
Icardi og Wanda Nara.
Mynd: Getty Images
Icardi spilar með PSG.
Icardi spilar með PSG.
Mynd: Getty Images
Það varð önnur U-beygja í máli Mauro Icardi og eiginkonu hans, Wöndu Nara, í dag.

Síðustu dagar hafa verið stormasamir hjá Icardi fjölskyldunni. Í síðustu viku hættu þau saman, byrjuðu samband sitt á ný og slitu því svo aftur.

Samband þeirra hefur verið umfjöllunarefni fjölmiðla enda fara þau ekki í neinar felur með sitt einkalíf og eru sífellt að setja inn færslur á samfélagsmiðla.

Wanda hefur sakað Icardi um framhjáhald. Samband þeirra byrjaði reyndar með framhjáhaldi 2013 þegar Nara var gift Maxi Lopez, fyrrum samherja Icardi hjá Sampdoria. Wanda er ekki aðeins eiginkona Icardi heldur einnig umboðsmaður hans.

Í dag sagði Wanda frá því á Instagram að þau væru aftur byrjuð saman.

„Ég var mjög sár yfir því sem gerðist. Á hverjum degi bað ég Mauro um skilnað. Þegar hann áttaði sig á því að hann gæti ekki lagað stöðuna, þá sagði hann mér að hann gæti ekki haldið svona áfram... við förum til lögfræðings og skrifuðum undir skilnað," skrifaði Wanda við mynd af þeim.

Hún segir að Icardi hafi skrifað til hennar bréf sem hafi breytt öllu. „Þá áttaði ég mig á því að ég hefði ekkert án hans. Ég er viss um að þessar slæmu stundir munu styrkja okkur sem par og sem fjölskyldu."

„Við höfðum bæði frelsi til að enda átta ára samband okkar, en þegar sálir okkar voru þreyttar á því að gráta, þá völdum við hvort annað. Ég elska þig Mauro Icardi."

Icardi hefur fengið frí með félagsliði sínu, PSG, upp á síðkastið. Það er spurning hvenær hann snýr aftur.


Athugasemdir
banner
banner
banner