Fotbolti.net
26.06.26 - 14:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jason Daði á leið í KR

Jason Daði á leið í KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir að Eiður Orri Ragnarsson var tilkynntur sem leikmaður Víkings hefur mikið verið slúðrað um að Jason Daði Svanþórsson gæti verið á leið í KR. Fótbolti.net hefur fengið ábendingar um að Jason sé á leið í læknisskoðun í Vesturbænum og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Jason að ganga í raðir félagsins. Hann hafði áður verið sterklega orðaður við Víking en Breiðablik, ÍA og Afturelding voru einnig nefnd í tengslum við leikmanninn.

Jason Daði, sem er 26 ára kantmaður, er með lausan samning eftir tvö tímabil með Grimsby á Englandi.
Jason Daði var sterklega orðaður við Víking í upphafi vikunnar en gæti nú verið á leið í KR. Ef hann fer í KR hittir hann fyrir Óskar Hrafn Þorvaldsson sem fékk hann frá Aftureldingu til Breiðabliks eftir tímabilið 2020 og unnu þeir saman í Kópavogi í þrjú tímabil.

Félagaskiptaglugginn í Bestu deildinni opnar 16. júlí. KR situr í 2. sæti Bestu deildarinnar sem stendur, níu stigum á eftir toppliði Víkings.

Eiður Orri var keyptur til Víkings frá Keflavík en klárar tímabilið á láni í Keflavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.