Fotbolti.net
Besta deildin
Viktor Ingi Valgarðsson
Besta karla - Efri hluti
Víkingsvöllur
Þétt setið, stemning og íslenska loftið
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
Fram
Fram
0 - 110' Kristófer KonráðssonAron Elís Þrándarson 34'1 - 11 - 257' Þorri Stefán ÞorbjörnssonValdimar Þór Ingimundarson 70'2 - 2
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Leik lokið!
2-2 Jafntefli!
Frábær skemmtun hér í Hamingjunni til að loka tímabilinu!
Víkingar á leiðinni að lyfta Íslandsmeistaraskyldinum annað árið í röð.
Til hamingju Víkingar og góða skemmtun í fögnuðinum. Fram eflaust fagna sínu Evrópusæti.
Ég þakka kærlega fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma á eftir. Takk fyrir Besta Deild!
93. mín
Aukaspyrna við hornfána fyrir Fram, þetta er eflaust síðasta færi tímabilsins.
93. mín
Viktor með VÖRSLU!
Valdimar gerði ótrúlega vel að henda Kennie af sér og fann síðan Helga sem átti skot en frábær varsla hjá Viktor Frey.
91. mín
Uppúr horninu er Óskar Borgþórs einn í kappi á móti Viktori sem kemur hlaupandi úr marki og var á undan í boltann.

Síðan átti Víkingsleikmaður skot fyrir aftan miðju en dreif ekki og Fram náði að hreinsa.
90. mín
+3mín í uppbót
Hornspyrna fyrir Fram.
88. mín
Komið blys á loft í stúkunni.
Sókn hjá Víkingum þar sem Óskar Bogga gefur hann á Gylfa en hann lendir í smá basli og missir boltann.
87. mín
Aftur er Kennie í færi en Uggi ver núna í hornspyrnu.
86. mín
Kennieee!!!!!!
Fram vinnur boltann og eru með allt galopið fyrir framan sig. Már Ægis með góðan bolta á Kennie sem er einn á Ugga en hann setur hann rétt framhjá fjærstönginni!!
84. mín
Bæði lið klára allar sínar skiptingar
Víkingur R.
84. mín
InnViðar Elí Bjarnason
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
Víkingur R.
84. mín
InnSölvi Stefánsson
ÚtDavíð Örn Atlason
82. mín
Róbert Orri með skalla yfir markið uppúr hornspyrnu.
80. mín
10mín eftir af Bestu Deildinni!
Fram aðeins lyft sér ofar en það er stutt á milli í þessu.

Jakob Byström var óheppinn að missa boltann eftir að Kennie gerði mjög vel í að senda boltann á hann við miðjan teiginn.
Víkingur R.
79. mín
Gult spjald

Ármann Ingi Finnbogason

78. mín
Oliver Ekroth getur talið sig heppinn!
Fellir Vuk Oskar á kantinum þeir voru aleinir í sókn og brotið er dæmt en ekkert spjald.
Fram
78. mín
InnÓliver Elís Hlynsson
ÚtÞorri Stefán Þorbjörnsson
75. mín
Tibbling með flottan bolta á Már í hlaupi en nær ekki til boltans.
Síðan eitthvað klikk í öftustu línu en Uggi náði að bjarga Víking frá hættu.

Hornspyrna núna hinu meginn á vellinum fyrir Víkinga.
73. mín
Aftur allt orðið jafnt og mómentið svolítið með Víkingum núna.
Víkingur R.
70. mín
Þetta var ekkert smá flott!!

Valdimar Þór Ingimundarson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

Gylfi með fasta og lága sendingu í hlaup hjá Valdimar sem kemur nógu mikið við boltann til að Viktor Freyr nær ekki að handsama boltann.
69. mín
Rétt fyrir skiptingu hjá Fram átti Gylfi skot sem fór yfir.

Sveinn Margeir síðan flaggaður rangstæður.
Fram
68. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtHaraldur Einar Ásgrímsson
Fram
68. mín
InnMár Ægisson
ÚtFrederico Bello Saraiva
68. mín
Sölvi hendir í þrefalda skiptingu.
Víkingur R.
66. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
Víkingur R.
66. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtAron Elís Þrándarson
Víkingur R.
66. mín
InnÓskar Borgþórsson
ÚtStígur Diljan Þórðarson
Óskar Borgþórsson er kominn aftur!
64. mín
Kennie Chopart með skalla í varnarmann og rétt yfir markið!!!
Önnur hornspyrna.
62. mín
Eftir fína byrjun Víkings í seinni eru Fram aftur að eiga mjög góðan kafla en síðustu fyrirgjafir ekki náð að skapa nógu mikla hættu.
Fram
57. mín
Fram aftur yfir!!!

Þorri Stefán Þorbjörnsson (stoðsending: Frederico Bello Saraiva)

Aukaspyrna við hornfánann og spyrnan er góð á fjær. Uggi kemur úr markinu en grípur í tómt og Þorri með skalla í tómt netið.

Gestirnir aftur komnir yfir 2-1!!!
Víkingur R.
56. mín
Gult spjald

Peter Oliver Ekroth

Keyrir Vuk niður.
Fram
55. mín
InnSimon Tibbling
ÚtKristófer Konráðsson
Fram
55. mín
InnJakob Byström
ÚtRóbert Hauksson
53. mín
Hornspyrna fyrir Víkinga.
52. mín
Víkingar að byrja seinni vel
Flott sókn sem endar með fínu skoti frá Helga Guðjóns en það rennur framhjá markinu, ekki útaf þó og Víkingar ná boltanum aftur.
Víkingur R.
50. mín
Gult spjald

Aron Elís Þrándarson

Fær verðskuldað spjald fyrir tæklingu sína á Vuk Oskar.
48. mín
Stígur gefur hann á Gylfa sem losar sig frá varnarmanni og tekur skot en það fer yfir markið.
46. mín
Gylfi með fyrsta skotið í seinni en það er þægilegt fyrir Viktor Frey.
46. mín
Seinni 45 framundan!
Síðustu 45mínúturnar á tímabilinu eru hafnar með upphafssparki Víkinga.
Fjörugar mínútur framundan, trúi ekki öðru.

Engar breytingar á liðunum í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Myndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
1-1 í fyrri hálfleik
Nokkuð kaflaskiptur leikur, Kristófer Konráðsson með frábært mark en Aron Elís jafnaði síðan. Tókum okkur smá pásu og vonandi sama stemning í þeim seinni.
45. mín
Aukaspyrna hjá Víking er síðasta færið hér í fyrri.
45. mín
2mín í uppbót
Stígur með lélega sendingu á Aron Elís og McLagan vinnur hann.

Tekur síðan mjög slakt skot.
44. mín
McLagan með hrikalega sendingu sem fer beint á Víkinga en sendinginn á Valdimar sem var að sleppa í gegn ekki nógu góð. Fá hornspyrnu.
Boltinn fellur vel fyrir Helga sem á gott skot en varið af Viktori í aðra hornspyrnu.
41. mín
Stígur Diljan með skot en náði ekki að snúa skotinu alveg nógu vel og framhjá endaði boltinn.
40. mín
Víkingar með hraða sókn og Ármann gerði vel í að finna Valdimar inn fyrir vörnina en Viktor Freyr gerir einnig mjög vel, mætir strax og lokar á skotið hans Valdimars.
37. mín
Lélegt hjá Víkingum, komu boltanum ekkert fyrir og Fred vann hann síðan og brunaði upp völlinn, átti skot sem Uggi varði í hornspyrnu.
36. mín
Víkingar með aukaspyrnu á vænlegu fyrirgjafar svæði.
Víkingur R.
34. mín
Víkingar jafna 1-1!!

Aron Elís Þrándarson

Fyrirgjöf sem er hreinsuð í burtu en beint til Aron Elísar sem tekur flott skot og sigrar Viktor Frey í markinu.
32. mín
Ármann Ingi aftur með góða fyrirgjöf en Víkingar komast ekki í hana.
Aron Elís nær honum síðan og lyftir honum aftur í teiginn, gegnum pakkann og framhjá markinu.
30. mín
Vuk Oskar með erfitt skot en sækir hornspyrnu fyrir sína menn.
28. mín
Ekki Mark, ekki víti og allur pakkinn!
Fyrirgjöf frá Ármanni á Niko Hansen sem dettur í teignum og síðan dettur boltinn fyrir Aron Elís sem setur hann í markið.
Hansen var hinsvegar rangstæður og ekkert verður úr þessu.
27. mín
Aukaspyrnan er skölluð í innkast af veggnum.
26. mín
Aukaspyrna á góðum stað
Kyle McLagan brýtur á Helga Guðjóns nokkrum metrum frá vítateignum.
Fínt skotfæri fyrir Gylfa Sig.
23. mín
Víkingar vilja víti!
Nikolaj Hansen vann boltann og loksins voru Víkingar mættir í sókn, fínt spil en sýndist það vera Gylfi sem fellur svo í teignum eftir tæklingu frá Haraldi Einar.
Vilhjálmur Alvar metur tæklinguna góða og áfram með leikinn.
21. mín
Markspyrna fyrir Víking, smá pása frá ótrúlega góðum kafla Fram.
Algjörlega til fyrirmyndar, Víkingar hinsvegar geta verið ósáttir við sjálfa sig því uppspilið hjá þeim gengur engan veginn.
19. mín
Kristófer með skot!
Þeir eru miklu betri Fram og Kristófer kemst í skot en það er vel varið hjá Ugga.

Annað horn fyrir Fram.
18. mín
Fram halda áfram með frábæra pressu og vinna aftur boltann ofarlega. Fred Saraiva reynir að komast í skot en nógu vel truflaður af Víkingum og skotið er slakt.
17. mín
Uggi pressaður í döðlur af Róberti Hauks og Fram vann boltann en síðan dæmd rangstæða.
16. mín
Fram leiðir 1-0 í Hamingjunni!
Smá skellur hér fyrir Víking til að byrja með þeir nenna varla að fara enda þetta á tapi.
Fram hinsvegar verið bara öruggir og flottir. Markið algjörlega glæsilegt og þeir eru kröftugir Framararnir um þessar mundir.
Fram
10. mín
VÁÁÁÁÁÁ!!!!!

Kristófer Konráðsson (stoðsending: Haraldur Einar Ásgrímsson)

Kristófer take a bow!!
Fram taka hornið stutt og Kristófer er bara pollrólegur og smellir honum í netið. Uggi á ekkert í þetta og horfir bara á eftir boltanum syngja í netinu.
9. mín
Ekroth reyndi að finna sendinga gegnum allt Fram liðið, hún er lesinn og Fram keyrir í sókn.
Ekroth skallar fyrirgjöfí burtu og í horn.
6. mín
Róbert Orri með góða og mjög mikilvæga tæklingu á Róberti Hauks.

Fram fær fyrsta horn leiksins. Kennie Chopart með skallan en rétt framhjá.
5. mín
Fram brjóta af sér í sókn og Víkingar hefja því sitt uppspil.
5. mín
Oliver Ekroth með flotta fyrirgjöf en markspyrna er það.
3. mín
Víkingar með boltann í byrjun.

Uggi í venjulegu útileikmann treyju Víkings er skrítin sjón en nýju treyjurnar hjá Víking eru einfaldlega GLÆSILEGAR.
Viktor Freyr með derruna enda á móti sól.
1. mín
Leikur hafinn
Síðasti leikur tímabilsins er hafinn!
Fram eiga upphafssparkið.

Það er mjög vel mætt hjá Víkingum enda 90mín í alvöru fögnuð. Það er fallegt veður en einsog við þekkjum þá er og verður kalt. Viljum samt enginn vettlingatök, góða skemmtun og munum að njóta.
Fyrir leik
Kristalkúlan á sínum stað

Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt
Má bæta við að Óskar Borgþórsson er mættur á bekkinn fyrir Víkinga. Síðasti leikur sem hann spilaði var 29.júlí í Evrópuleik. Hann er líka búin að koma sér fyrir í nýju treyjunúmeri fyrir þennan leik nr.66.
Fyrir leik
Leikmenn í banni
Freyr Sigurðsson fékk að líta beint rautt í síðasta leik og er í banni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sama gerðist hjá Daníel Hafsteinssyni sem er því einnig í banni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Víkingar vs Fram þetta tímabil
Þetta er fjórða sinn sem þessi lið eru að mætast á tímabilinu. Fyrst var það í Mjólkurbikarnum, þar sem Víkingar unnu 4-2. Síðan voru það leikirnir tveir fyrir skiptingu. Hér er hægt að sjá allt það helsta úr þeim leikjum.
Fyrir leik
Dómarateymið
Í þessum síðasta leik Bestu Deildar karla er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson á flautunni.
Gylfi Már Sigurðsson og Eysteinn Hrafnkelsson eru AD1 og AD2
Fjórði dómarinn er Arnar Þór Stefánsson
Dómaraeftirlitsmaður er Kristinn Jakobsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Íslandsmeistara titillinn á loft!
Nú annað árið í röð eru Víkingar orðnir íslandsmeistari. Það má búast við frábærri stemningu á heimavelli Hamingjunnar því eftir lokaflautið fer titillinn á loft. Fram sem er búið að læsa þriðja sætinu og Evrópu fyrir næsta tímabil mæta á Víkingsvöllinn til að klára tímabilið sitt með stæl og jafnvel setja smá bláan Fram lit í fögnuð Víkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðgerðartreyjan
Mynd: Víkingur



Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, og fjölskyldu hans. Ingvar greindist með krabbamein fyrr á árinu og heyr nú baráttu við það. Styrktaraðilar Víkings gáfu allir eftir pláss sitt á treyjunni til styrktar málefninu.

Treyjan er afrakstur samstarfs Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs. 66°Norður hannaði hana, Macron framleiddi og í henni leika Víkingar síðasta leik tímabilsins.
Fyrir leik
Innkastið verður í beinni á X977 klukkan 18
Mynd: Fótbolti.net

Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.

Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.