Fotbolti.net
25.10.26 - 11:49
Brynjar Ingi Erluson

Vill þjálfa í ensku úrvalsdeildinni

Vill þjálfa í ensku úrvalsdeildinni
Canon

Mynd: EPA

Enska B-deildarfélagið Burnley hefur mikinn áhuga á að ráða spænska þjálfarann Carlos Corberan, en óvíst er hvort félaginu takist að fá hann til sín.
Blaðamaðurinn Ben Jacobs segir að Corberan sé efstur á óskalista Burnley eftir að félagið ákvað að láta Nick Hayen taka poka sinn.

Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor og hefur gengið illa í upphafi tímabilsins í B-deildinni. Liðið situr í 22. sæti með aðeins átta stig og ákváðu stjórnarmenn félagsins því að grípa til aðgerða og segja Hayen upp störfum.

Diego Lopez, fyrrum yfirmaður íþróttamála hjá Genoa, er að taka við sambærilegu starfi hjá Burnley og vill fá Corberan til félagsins. Spánverjinn hefur áður stýrt Huddersfield Town, Olympiakos og Valencia.

Corberan þekkir vel til í ensku B-deildinni og tókst meðal annars að koma West Bromwich Albion úr erfiðri stöðu þegar hann tók þar við stjórnartaumunum.

Það gæti hins vegar reynst Burnley erfitt að fá hann til félagsins því samkvæmt heimildum Jacobs stefnir Corberan á að taka næst við liði í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.