Ársmiðahafar geta keypt miða í dag
Miðasala á leik Íslands og Rúmeníu í umspili undankeppni EM 2020 hefst í dag á Tix.is. en þá geta þeir sem keyptu ársmiða fyrir undankeppni EM keypt miða.
Miðasala fyrir þá sem keyptu haustmiða fyrir undankeppni EM 2020. Hefst föstudaginn 28. febrúar kl. 12:00.
Almenn miðasala. Hefst mánudaginn 2. mars kl. 12:00.
Nánari upplýsingar um miðasölu til árs- og haustmiðakaupenda verða sendar beint til þeirra kaupenda frá miðasölukerfi Tix.is.
Mest er hægt að kaupa 4 miða.
Þrjú miðaverð verða í boði:
3500 krónur
5500 krónur
7500 krónur
50% afsláttur verður í boði fyrir 16 ára og yngri.
Leikurinn fer fram 26. mars og verður leikinn á Laugardalsvelli. Sigurvegari viðureignarinnar mætir Búlgaríu eða Ungverjalandi í leik um laust sæti í lokakeppni EM 2020.
Athugasemdir