26.09.26 - 16:22
Brynjar Ingi Erluson
Salah sleppir leiknum vegna gervigrassins

Mohamed Salah

Mynd: EPA

Mohamed Salah

Mynd: EPA
Mohamed Salah, stjarna egypska landsliðsins, verður ekki með gegn Suður-Súdan í undankeppni Afríkukeppninnar á þriðjudag vegna vallaraðstæðna.
Salah var með Egyptum í markalausa jafnteflinu gegn Angóla á dögunum, en lék aðeins í um klukkutíma.
Hann ferðast hins vegar ekki með liðinu til Juba í Suður-Súdan og hefur egypska fótboltasambandið staðfest að ákveðið hafi verið að hvíla hann þar sem leikurinn fer fram á gervigrasi.
„Starfslið egypska landsliðsins, sem er leitt áfram af Hossam Hassan, hefur ákveðið að hvíla Mohamed Salah fyrir leikinn gegn Suður-Súdan sem fer fram þann 29. september næstkomandi vegna undirlags vallarins.“
„Starfsteymi landsliðsins og Mohamed Salah náðu samkomulagi fyrir leikinn gegn Angóla um að hann myndi ekki spila gegn Suður-Súdan og taldi starfsteymið þetta vera réttu nálgunina til þess að vernda leikmanninn,“ segir í yfirlýsingu egypska sambandsins.
Lengi hefur verið sú skoðun uppi að meiðslahættan sé meiri á gervigrasi, þrátt fyrir miklar framfarir í gerð slíkra valla á síðustu árum. Rannsóknir hafa þó ekki sýnt fram á að meiðslahættan sé meiri þar en á náttúrulegu grasi.
Salah yfirgaf Liverpool eftir síðasta tímabil eftir að hafa skorað 257 mörk í 442 leikjum og unnið níu titla með félaginu. Hann gekk í kjölfarið í raðir Trabzonspor í Tyrklandi og hefur skorað sjö mörk og lagt upp tvö í fyrstu sex leikjum sínum með félaginu.