Fotbolti.net
26.09.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Meiðsli Havertz og Musiala ekki alvarleg

Meiðsli Havertz og Musiala ekki alvarleg
Canon

Mynd: EPA

Þýsku landsliðsmennirnir Kai Havertz og Jamal Musiala meiddust í jafnteflisleik gegn Hollandi á fimmtudaginn.
Þeir munu því ekki leika meira með Þýskalandi í landsleikjahlénu og snúa aftur til félagsliða sinna Arsenal og FC Bayern.

Báðir eru að glíma við vöðvameiðsli sem ættu ekki að halda þeim lengi frá keppni. Talið er að Musiala verði frá í þrjár til fjórar vikur á meðan bataferlið gæti verið helmingi styttra hjá Havertz.

Ef allt gengur að óskum gæti Havertz því komið við sögu þegar Arsenal tekur á móti Leeds United 10. október.

Musiala verður ekki í hóp þegar Bayern heimsækir Augsburg sama dag og missir líklegast af leikjum gegn Íslendingaliði Viking FK í Meistaradeildinni og stórleik gegn RB Leipzig í Bundesliga.

Musiala gæti þó verið með þegar Bayern og Arsenal mætast í risaslag í Meistaradeildinni 21. október.

Wirtz kemur fyrr inn í þýska hópinn út af meiðslum
TENGT EFNI

Wirtz kemur fyrr inn í þýska hópinn út af meiðslum

Meiðsli Havertz og Musiala ekki alvarleg
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.